8.9 C
Selfoss

Þekkingasetur á Laugavatni um úrgangsmál fær fjárstuðning

Vinsælast

Samkomulag um fjárstuðning til stofnunar þekkingarseturs á Laugavatni hefur verið undirritað á milli SASS og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Tilgangur þekkingarsetursins er að aðstoða sveitarfélög að innleiða hringrásarhagkerfi í úrgangsmálum með megináherslu á endurnýtingu og þar með að draga úr urðun heimilisúrgangs. Samkomulagið gildir til ársins 2024 og nemur fjárstyrkurinn 5.870.000 kr.

Í samkomulaginu segir að markmiðið sé að leiða saman sveitarfélög, atvinnulíf og háskóla til að vinna að samfélagslegri uppbyggingu, sem byggi á stoðum fræðimennsku, hagkvæmni einkaframtaksins og vilja til að gera enn betur.

„Með þessari styrkveitingu er ætlunin að skapa mikilvægan vettvang til að veita sveitarfélögum ráðgjöf og gera kleift að standa við markmið sín varðandi úrgangsmál og stuðla að framþróun og uppbyggingu á því sviði,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Þekkingarsetrið mun aðstoða sveitarfélög við að halda utan um málaflokkinn og laga sig að nútímalegri úrgangsstjórnun. Það mun einnig birta upplýsingar um þjónustugjöld og raunkostnað við afsetningu úrgangs í öllum sveitarfélögum og koma á samræmingu á úrgangsgögnum frá mismunandi þjónustuaðilum.

Nýjar fréttir