6.7 C
Selfoss

Skelltu þér í birkimó

Vinsælast

Þann 16. september er dagur Íslenskrar náttúru og þá hefst í annað sinn landsátak í söfnun birkifræs. Skógræktin og Landgræðslan hafa tekið höndum saman og óska eftir stuðningi landsmanna við að safna fræi og breiða út birkiskóga landsins. Í haust sem leið var safnað umtalsverðu magni af birkifræi sem var að hluta dreift haustið 2020 en í vor var afganginum dreift á valin, beitarfriðuð svæði. Nánari upplýsingar eru á heimasíðunni www.birkiskogur.is

Aðal samtarfsaðilar Landgræðslunnar og Skógræktarinnar í birkisöfnunarverkefninu eru Prentmet Oddi, Terra og Bónus.  Aðrir eru Landvernd, Skógræktarfélag Íslands, Kópavogsbær, Skógræktarfélag Kópavogs, Heimilistæki, Tölvulistinn, Kvenfélagasamband Íslands og Lionshreyfingin.

274 kg af fræi söfnuðust í fyrra

Þegar fræ á birki hefur þroskast er hægt að hefja söfnun fræsins. Á sumum stöðum má gera ráð fyrir að birkireklar verði fullþroskaðir fyrir eða um miðjan september. Í fyrra safnaðist mest á Suður- og Vesturlandi en þar var með eindæmum gott fræár en frekar lélegt á Norður- og Austurlandi. Núna hefur þetta snúist. Á Norðurlandi og víða á Austurland er fræmagn á trjám með ágætum en mun lakara fyrir sunnan og vestan.  Ekki er óalgengt að fræþroski sé mismikill á milli ára. Í fyrra var tekið á móti 274 kg af birkifræi. Mjög margir dreifðu sjálfir fræinu sem þeir söfnuðu í fyrra.

 Markmiðið að breiða út birkiskóglendi

Átakið er liður í því að útbreiða á ný birkiskóglendi sem þakti a.m.k. fjórðung landsins við landnám. Á rýru landi er gjarnan kolefnislosun því þar er gamall jarðvegur enn að rotna. Ef landið klæðist birkiskógi stöðvast þessi losun og binding hefst í staðinn. Svona verkefni eru því líka loftslagsverkefni.

Birkið er frumherjategund sem sáir sér mikið út á eigin spýtur ef hún fær til þess frið. Birkið heldur því starfinu áfram ef vel tekst til að koma því af stað á nýjum svæðum.

Allir út að tína birkifræ

Í haust verða fræbox að finna í verslunum Bónus um land allt. Einnig getur fólk fengið box á starfsstöðvum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar. Hægt er að skila fræjum í fræsöfnunartunnur sem eru í Bónus og víðar. Þá er tekið á móti fræi í starfsstöðvum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar.  Sjá upplýsingar á birkiskogur.is

Ef fólk leggur sjálft til poka þá þarf að setja miða með upplýsingum um söfnunarstað og dagsetningu – og muna að loka pokunum vel. Ekki nota plastpoka því nýtínd og rök fræ skemmst mjög fljótt.  Efnið verður að geta „andað“.

Safna má birkifræi frá lokum ágúst og fram í byrjun október eða svo lengi sem reklar eru á birkitrjám. Yfirleitt hefur verið mælt með frætínslu í september og október, en í hlýjum árum mætti byrja tínslu fyrr þ.e. frá lokum ágúst.

 

Nýjar fréttir