6.7 C
Selfoss

Ásmundur Einar heimsótti Sigurhæðir á Selfossi

Vinsælast

Það var ánægjuleg stund þegar Ás­mundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra leit við hjá Sigurhæðum á Selfossi. Verkefnið er frumkvöðlaverkefni sem Soropti­mistaklúbbur Suður­lands ýtti úr vör, en sam­starfs­aðilar verk­efnisins eru sveitar­félög á Suður­landi, ýmsir sjóðir og ráðuneyti. Verk­efnis­stjóri Sigurhæða er Hildur Jóns­dóttir, en hún tók á móti ráð­herra og sagði frá starf­sem­inni. Sigurhæðir eru fyrsta samhæfða þjónustan við þol­endur kyn­bundins ofbeldis í sunn­lensku nærsamfélagi.

Nauðsynlegt að úrræði eins og Sigurhæðir sé í sunnlensku nærsamfélagi

Heiða Ösp Kristjánsdóttir, deildar­stjóri félags­þjónustu í Ár­borg sagði að úrræðið Sigur­hæðir hefði mikla þýð­ingu fyrir skjólstæðinga félags­þjón­ustunnar sem þurfa á þess­háttar hjálp að halda. Því sé mikilvægt og nauðsynlegt að hafa úrræði eins og Sigurhæðir í nær­samfélaginu. „Það skiptir höfuðmáli að við höfum úrræði sem þetta í okkar heima­samfélagi.“

Úrræðið virkar– notendur ánægðir

Heiða situr fyrir svörum frá sjónar­hóli félags­þjónustunnar í Ár­borg þegar blaðamaður innir eftir því hver árangur sé af úr­ræðinu. Hún segir að þau mál sem hefur verið vísað í úrræðið hafi gengið vel og fengið já­kvæða útkomu og þjónustu­þegar ánægðir með þá þjónustu sem úrræðið veitir þeim.

Brýnt að tryggja fjármagn til frambúðar

Í máli Hildar kom fram að nauð­synlegt væri að tryggja fjármagn fyrir starfsemina til lengri tíma. Mikil ásókn væri í verkefnið og ekki sæi fyrir endann á því. Ráð­herra tók undir það og hvatti sam­tökin til að láta ekki deigan síga og innan ráðuneytisins væri velvilji fyrir verkefnum á borð við Sigurhæðir. ,,Það var frábært að fá að heimsækja Sigur­hæðir á Selfossi og sjá kraft­inn og metnaðinn í starfinu. Úr­ræði á borð við Sigurhæðir eru mikilvæg nærumhverfi sínu og á síðustu árum hefur þeim sem betur fer fjölgað og þau farið víðar um landið en bara um höfuðborgarsvæðið,”  sagði Ásmundur Einar.

Nýjar fréttir