7.8 C
Selfoss

Starfsemi í nýja miðbæ Selfoss fór í gang um helgina

Vinsælast

Um helgina opnuðu veitingastaðir og verslanir í nýja miðbænum á Selfossi.

Starfsemi í fyrri áfanga nýja miðbæjarins á Selfossi fór í gang núna um helgina og verslanir og veitingastaðir að opna fyrir gestum og gangandi.

Um reynsluopnun, eða „soft opening“ er að ræða. Framkvæmdir við fyrri áfanga miðbæjarins eru langt komnar og þó ekki séu öll húsin þrettán fullbyggð og ýmis handtök eftir í umhverfisfrágangi var það vilji allra aðstandenda að fá álit bæjarbúa og annarra, og slípa reksturinn til í samstarfi við gesti næstu daga og vikur.

Þær verslanir sem opnuðu núna í hinu nýja Brúarstræti á Selfossi eru Penninn/Eymundsson, Tiger, 1905 blómabúð, Listasel gallerí og jólabúðin Mistilteinn. Stærsta verslunin við götuna, tísku- og hönnunarverslunin Motivo opnar innan tíðar eins og ísbúð Kjöríss, Miðbæjarís og fleiri verslanir.

Í matarmenningarsetrinu í hinu glæsilega endurreista húsi Mjólkurbús Flóamanna eru átta veitingastaðir að hita upp í grillum, ofnum og pottum og pönnum. Þeir eru, Samuelsson matbar, Flatey pizza, Smiðjan brugghús, Menam, Romano Pasta Street Food, El Gordito Taco, Dragon Dim Sum og síðan Ísey skyrbar sem rekinn er samhliða Skyrlandi, metnaðarfullri upplifunarsýningu um íslenska skyrið.

Nýjar fréttir