7.8 C
Selfoss

Þrengslin á Selfoss og Kótelettustrætó  

Vinsælast

Leiðin liggur um Þrengslin og Eyrarbakkaveg á Selfoss þann 10. júlí og af Eyrarveginum á Selfossi um Fossheiði.

Sveitarfélagið Árborg býður upp á bílastæði og strætó á 7-10 mínútna fresti og hvetur fólk til að fara ekki akandi að hringtorginu við Ölfusárbrú, Tryggvatorgi. Beygja má af Eyrarvegi við Fossheiði og þá er fólk hólpið í góð bílastæði og Kótelettustrætó. Auðvitað er svo alveg kjörið að vera hjólandi, Árborg er flatlend og reiðhjólavæn.

Á Selfossi verður Kótelettan með sína veislu og klukkan 18:00 ræsir svo KIA gullhringurinn í fyrsta sinn á Selfossi, við nýja miðbæinn. Hægt verður að kíkja á nýja miðbæinn og aldrei að vita nema eitthvað megi fá í gogginn þar.

Þá eru afþreyingarmöguleikar ótæmandi, bæði á Selfossi, þar sem Sundhöllin stendur upp úr, en einnig niður við ströndina. Á ströndinni liggur Vitaleiðin í allri sinni dýrð, um Þorlákshöfn, Eyrarbakka, Stokkseyri og fjölbreytta náttúru. Á Stokkseyri eru kayakferðir um vötn og síki algert fjölskyldugaman og vinsælli en nokkru sinni.

Sú hindrun sem gamla Ölfusárbrúin á Selfossi er orðin er nú flestum kunn og hringtorgið þar löngu sprungið. Þess vegna hvetjum við bílstjóra til að forðast hringtorgið við Ölfusárbrú. Við hvetjum reyndar bílaumferð til að forðast Austurveginn allan á milli klukkan 12:00 og 18:00 þennan dag. Kjörið er að heimsækja hann fremur fótgangandi.

Á milli 12:00 og 18:00 þann 10. júlí mun Kótelettustrætó Árborgar stoppa á 7-10 mínútna fresti við Sundhöll Árborgar og þaðan er stuttur spölur til að njóta lífsins á Kótelettunni, fara í sund, spígspora um nýjan miðbæ, sem er að taka á sig mynd, fá sér ís í Huppu eða snarl í Pylsuvagninum, nú eða njóta einhvers annars af allri þeirri verslun og þjónustu sem finna má við Austurveg og Eyrarveg á Selfossi. Um klukkan 18:00 verður svo ræst í KIA gullhringinn hjá nýja miðbænum.

Kótelettustrætóinn stoppar víða og meðal annars við verslunarklasann austast í Selfossi, þar sem Bónus, Byko, Almar bakari, Vínbúð, Snyrtistofan Metta og Freistingasjoppan reka verslanir. Stoppistöð verður við Pósthúsið í Larsenstræti. Þar verða ómerkt bílastæði á byggingarlóð Húsasmiðjunnan sunnan Larsenstrætis.

Bestu bílastæðin sem við bjóðum upp á verða hinsvegar við Sunnulækjarskóla Norðurhólum 1 og við FSu (Fjölbrautarskóla Suðurlands) við Tryggvagötu 25. Þaðan verður Kótelettustrætó aðeins augnablik að skila fólki upp Tryggvagötuna og að Sundhöll Selfoss.

Akstursleiðin um Selfoss

Eyrarvegur tekur við þegar komið er frá Eyrarbakka að Selfossi og þar ættu gestir að taka hægri beygju á hringtorginu við Fossheiði, á móts við Árvirkjann og Hamborgarabúllu Tómasar.

Fossheiði mætir Tryggvagötu á hringtorgi þaðan sem allir vegir eru færir. Við mælum með að þaðan sé ekið til hægri, suður að Norðurhólum þar sem Sunnulækjarskóli er númer 1.

Einnig er hægt að fara beint áfram yfir hringtorgið af Fossheiði og aka Langholtið allt þar til komið er að Byko og þá tekin hægri beygja inn Larsenstræti, áður en komið er að Austurvegi. Rarik og Húsasmiðjan hafa heimilað að byggingarlóðir þeirra sunnanvert Larsenstræti verði nýttar sem bílastæði.

Árborgarstrætó býður upp á sérstakar strætóferðir á Kótelettunni, 10. júlí 2021.

Kótelettustrætó Árborgar mun aka á 7-10 mínútna fresti frá klukkan 12:00 til 18:00 þann 10. júlí. Strætó mun aka hringleið sem hefst við Sunnulækjarskóla, liggur um Tryggvagötu að Sundhöll, þaðan um Bankaveg, Sólvelli og Reynivelli niður á Engjaveg. Engjaveginn austur að Langholti og svo um Larsenstræti. Larsenstræti til baka og Langholtið niður að Erlurima. Erlurimi verður að síðustu ekinn niður að Norðurhólum og þaðan að Sunnulækjarskóla.

Stoppistöðvar verða:

  • Sunnulækjarskóli – Norðurhólum 1
  • FSU – Tryggvagötu 25
  • Sundhöll Selfoss – Tryggvagötu 15
  • Tjaldsvæðið Gesthúsum – Engjavegi 56
  • Pósthúsið – Larsenstræti 1
  • Sunnulækjarskóli – Norðurhólum 1

Bílastæði

Árborg mælir með bílastæðunum við Sunnulækjarskóla, Norðurhólum 1, og bílastæðunum við Fjölbrautarskóla Suðurlands, FSu. Bílastæði eru þó mun víðar í nágrenni Tryggvagötu, svo sem í nágrenni Vallaskóla við Sólvelli og Engjaveg.

Einnig hafa Rarik og Húsasmiðjan heimilað afnot af byggingarreitum sínum sem liggja með sunnanverðu Larsenstræti. Þaðan er stutt að fara í stoppistöðina við Pósthúsið og í stórverslanir í nágrenninu.

Auk þessa eru víða bílastæði í nágrenni akstursleiðar Kótelettustrætósins.

Nýjar fréttir