-5 C
Selfoss

Bergrisinn – Surf- og strandarhátíð í Þorlákshöfn

Vinsælast

Bergrisinn er einn af landvættunum fjórum, sá sem verndaði Suðurland og kom upp úr sjónum í fjörunni í Þorlákshöfn. Það er því vel við hæfi að Surf- og strandarhátíð Þorlákshafnar skuli bera nafnið Bergrisinn. Bergrisinn verður haldinn laugardaginn 3. júlí og er liður í dagskrá í tilefni 70 ára afmælis þéttbýlis í Þorlákshöfn, en hátíðarhöld verða fyrstu helgi hvers mánaðar út árið að því tilefni. Dagskrá Bergrisans samanstendur af fjölmörgum viðburðum fyrir alla fjölskylduna þar sem fjölbreytt afþreying sem tengist fjörum, sjó og menningu verður í boði. Má þar nefna kynningu á bæði sjósundi og sjóbrettum, sjósund undir leiðsögn Ernu Héðinsdóttur og áhugasömum gefst kostur á að prófa sjóbretti í sundlauginni undir leiðsögn hjónanna Láru og Jóhannesar. Þá verður sandkastalagerð, fjöruhlaup og fjöru jóga í boði Jógahornsins, strandblak, listasmiðja við vitann og fleira. Prjónarar hvattir til að koma með prjónana sína og útilegustól að Hafnarnesvita kl. 16 og eiga þar góða prjónastund í kyngimögnuðu umhverfi. Kvöldið endar á matarvögnum frá Reykjavík street food og tónleikum við Hafnarnesvita þar sem tvær virkilega efnilegar hljómsveitir úr heimbyggð koma fram. Það eru hljómsveitirnar Moskvít og Sunnan 6 ásamt gestasöngkonunum Evu Þórey og Emilíu Hugrúnu. Allir viðburðir eru fólki að kostnaðarlausu fyrir utan matarvagna og aðgangseyrir í sund. Verið hjartanlega velkomin á Bergrisann í Þorlákshöfn. Allar nánari upplýsingar eru á facebook síðunni Hamingjan við hafið.

Nýjar fréttir