8.4 C
Selfoss

Forseti Íslands sótti Ölfus heim

Vinsælast

Forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú fóru í opinbera heimsókn í Sveitarfélagið Ölfus. Heimsóknin, sem stóð í einn dag, hófst í Herdísarvík þar sem Elliði Vignisson bæjarstjóri og Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar, tóku á móti gestunum og sögðu frá ábúendum í Herdísarvík. Þá var ekið til Þorlákshafnar þar sem hjónin fengu kynningu á fiskeldisstöðvum Laxa fiskeldis og Landeldis. Næst tók við vorhátíð í Grunnskólanum í Þorlákshöfn þar sem nemendur sungu fyrir gestina og forseti flutti ávarp og afhenti gjöf til sveitarfélagsins. Í hádeginu snæddu hjónin hádegisverð í boði sveitarstjórnar á veitingastaðnum Hendur í höfn en þá tók við heimsókn á skrifstofu hafnarstjórnar þar sem sagt var frá hugmyndum um verulega stækkun á höfninni og aukinni starfsemi þar á næstu árum. Þá heimsóttu forseti og forsetafrú Níuna, dagdvöl eldri borgara í bænum, og ræddu þar við starfsfólk og gesti en heimsókninni lauk með því að þau fengu kynningu á sögu Hjallakirkju í Ölfusi og skoðuðu hana.

Nýjar fréttir