2.8 C
Selfoss

Ný tækifæri til náms í sumar á Háskólabrú

Vinsælast

Háskólabrú Keilis í samstarfi við Háskóla Íslands býður upp á tvenn námsúrræði í sumar fyrir þau sem hyggja á háskólanám.

Annars vegar Háskólabrú á sumarönn sem núverandi nemendur geta skráð sig í og lokið í sumar. Námið hentar þeim nemendum sem vilja nýta sumartímann til að flýta fyrir náminu eða minnka álag í haust.

Hins vegar verður boðið upp á háskólabrú með undirbúningi í sumar. Námið verður í boði fyrir þá nemendur sem vantar fáa áfanga í viðbót til að uppfylla inntökuskilyrði í Háskólabrú Keilis. Ráðgert er að auka framboð á undirbúningsáföngum til þess að veita fleirum möguleika á námsleiðinni.

Yfir 2000 einstaklingar útskrifaðir

Haustið 2008 undirrituðu Keilir og Háskóli Íslands samning þess eðlis að próf á Háskólabrú skuli teljast sambærilegt stúdentsprófi. Háskólabrú Keilis er þannig eini skólinn á Íslandi sem býður upp á aðfaranám í samstarfi við þennan fjölmennasta háskóla landsins og gildir námið til inntöku í allar deildir hans.

Frá því að fyrstu nemendur Háskólabrúar brautskráðust sumarið 2008 hafa yfir tvö þúsund einstaklingar lokið náminu. Af þeim hafa nærri níu af hverjum tíu haldið áfram í námi bæði innan Háskóla Íslands sem og í öðrum háskólum hérlendis og erlendis, en eftir þeirra inntökuskilyrðum hverju sinni.

Ánægðir nemendur, vel undirbúnir fyrir háskólanám

Markmiðið með Háskólabrú er að nemendur skólans séu vel undirbúnir til að takast á við kröfuhart háskólanám. Stór hluti af gæðastarfi Keilis leggur þannig áherslu á að fylgjast grant með gengi og framgangi útskrifaðra nemenda Háskólabrúar í háskólanámi sínu.

Kannanir sýna að um 80% útskriftarnemenda telja sig vera vel undirbúna fyrir háskólanám. Þá eru nemendur af Háskólabrú í fjórða sæti yfir þá nemendur sem telja sig vel undirbúna fyrir háskólanám í kennslukönnunum nemenda í Háskóla íslands.

Niðurstöður könnunar um líðan og þjónustu skólans á síðasta ári gáfu jákvæðar niðurstöður eins og hefur verið undanfarin ár. Nemendur eru ánægðir með námið í heild hvort sem það eru kennsluhættir námsmatsfyrirkomulag starfsfólk eða fyrirkomulag námsins.

Nemendur taka sérstaklega fram mikilvægi aðfaranáms með þessu sniði og ítreka með umsögnum að námið henti vel fullorðnum námsmönnum. Nemendur eru þakklátir fyrir þennan valmöguleika og tækifærið sem þeir fá á fullorðins árum þegar þeir eru tilbúnir og hafa kost á því að hefja aftur nám eftir hlé.

Hólmfríður Lilja Haraldsdóttir, Selfyssingur og nemandi á Háskólabrú, segir eftir fyrstu önnina í náminu „[Ég] náði öllu með einkunnum sem ég hafði talið mér trú um að geta ekki fengið. Held ég hafi ekki séð svona einkunnir síðan í grunnskóla og þá fyrir sameiningu. Því það skiptir miklu máli að líða vel í skólanum. Það er eitthvað sem ég hef ekki upplifað í mörg ár. Er mjög fegin að hafa tekið skrefið, búin að hugsa um það í nokkur ár.“

Opið er fyrir umsóknir um nám á Háskólabrú í staðnámi og fjarnámi, með eða án vinnu. Umsóknarfrestur er til og með 14. júní, frekari upplýsingar á haskolabru.is.

 

Nýjar fréttir