2.8 C
Selfoss

Frískir Flóamenn og Björgunarfélag Árborgar áfram með í Laugavegshlaupinu

Vinsælast

Á dögunum var undirritaður nýr samstarfssamningur milli Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR), Frískra Flóamanna og Björgunarfélags Árborgar um brautargæslu í Laugavegshlaupinu næstu þrjú árin.  FF og BFÁ hafa séð um brautargæslu a.m.k frá 2004 og hafa fengið mikið hrós fyrir í gegnum tíðina.  Þetta er jafnan þakklátt starf og sérstaklega skemmtilegt að þjónusta hlaupara í þessari miklu áskorun sem hlaupið er.  Mikil áhugi er á utanvegahlaupum og hefur fjöldi þátttakenda í Laugavegshlaupinu margfaldast milli ára.  Árið 2015 luku rúmlega 350 manns keppni en árið 2020 voru þeir um 530.

Samtals senda FF og BFÁ 50 manns í vinnu við hlaupið. Auk þess sér BFÁ um að flytja starfsfólk og búnað á starfsstöðvar.  Starfstöðvar eru í Landmannalaugum, Hrafntinnuskeri, Jökultungum, Álftavatni, Hvanngili, Bláfjallakvísl, á söndunum, í Emstrum, Emstrugili, við Ljósá og Þröngá.  Næsta Laugavegshlaup er laugardaginn 17. Júlí 2021.  Þegar er uppselt í hlaupið.

 

 

Mynd:

(FF)

texti með mynd:  Frá undirritun samningsins. Jóhann Valgeir Helgason formaður BFÁ, Jóna Hildur Bjarnadóttir frá ÍBR og Aðalbjörg Skúladóttir formaður FF.

 

Nýjar fréttir