3.4 C
Selfoss

Maður lést eftir að hafa verið fastur í vök

Vinsælast

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suæurlandi kemur fram að lögregla, sjúkraflutningar og björgunarsveitir í Árnessýslu hafi verið kallaðar til á sjöunda tímanum í kvöld. Tilkynnt var um mann er hafði setið fastur í vatni úti á mýri og hafði hann kallað eftir aðstoð.

Samkvæmt upplýsingum var mikið  dregið af honum þegar komið var að honum og missti hann meðvitund fljótt eftir að fyrsti maður kom að honum. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn við komu á heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Dánarorsök er ekki vituð að svo stöddu, en lögreglan á Suðurlandi er með málið til rannsóknar.

Nýjar fréttir