-0.5 C
Selfoss

Leiðbeiningar almannavarna um jólahald og boð

Vinsælast

Almannavarnir birtu leiðbeiningar fyrir jólahald og boð í kringum hátíðarnar á vefnum COVID.is í dag. Þar er lögð áhersla á að fólk njóti rafrænna samverustunda, eigi góðar stundir með heimilisfólkinu og hugi að heilsunni og stundi útivist í fámennum hópi.

Þá er lagt til að fólk sé tilbúið með innkaupalista þegar farið er að versla og að máltíðir af veitingastöðum verði teknar heim.

„Fyrir mörg okkar verður þessi tími frábrugðinn því sem við erum vön líkt og með annað á þessu ári,“ segir í leiðbeiningunum á vefnum. Það séu hins vegar ýmsar leiðir til að gleðjast saman.

„Sumar athafnir fela í sér meiri áhættu en aðrar og þessar leiðbeiningar innihalda ráðleggingar um það hvernig gott sé að haga málum yfir hátíðarnar.“

Um heimboð og veitingar

Um heimboð og veitingar leggja almannavarnir til þessi viðmið:

  • Látum gesti vita um boðið með góðum fyrirvara svo þeir hafi tækifæri til að fara varlega dagana fyrir boðið.
  • Fylgjumst með þróun faraldursins.
  • Virðum fjöldatakmarkanir og tryggjum nándarmörk og einstaklingsbundnar smitvarnir.
  • Forðumst samskotsboð („pálínuboð“) og hlaðborð.
  • Geymum handabönd, faðmlög og kossa til betri tíma.
  • Hugum að loftræstingu og loftum út á meðan á boðinu stendur.
  • Bjóðum upp á grímur ef gestir kjósa, þvoum hendur og sprittum okkur reglulega.
  • Takmörkum sameiginlega snertifleti og þrífum þá oft og reglulega.
  • Notum grímu og þvoum okkur reglulega um hendur á meðan við útbúum matinn, berum hann fram og göngum frá.
  • Takmörkum fjölda fólks í eldhúsinu eða þar sem maturinn er útbúinn og gengið er frá eftir matinn.
  • Takmörkum notkun á sameiginlegum áhöldum, svo sem tertuhnífum, kaffikönnum, mjólkurkönnum og svo framvegis.
  • Þvoum allt tau eftir hvert boð, svo sem dúka og tauservíettur.
  • Forðumst söng og hávært tal, sérstaklega innandyra.

Um heimagistingar

Almannavarnir benda á að mikilvægt sé að fólk geri ráðstafanir ef gestir eða heimilisfólk veikist af COVID-19 á meðan heimsóknum stendur. Það er algengt að vinir og fjölskylda dvelji saman yfir hátíðirnar á sama heimili.

„Við þurfum að huga að sóttkví, einangrun, heilbrigðis­þjónustu og ferðalaginu heim ef um gesti er að ræða. Hvort sem við gistum að heiman eða fáum sjálf gesti yfir hátíðirnar þurfum við að huga vel að sóttvörnum, sérstaklega ef einhver er í áhættuhópi.“

Um ferðalög erlendis og innanlands

Almannavarnir leggja áherslu á að fólk sé meðvitað um faraldurinn þegar það ferðast fyrir hátíðirnar, hvort sem það er til landsins eða milli landshluta.

  • Fólk er beðið um að kanna hvort einhver tilmæli eða takmarkanir séu í gildi vegna ferðalaga. Við komuna til landsins þarf að fara í 14 daga sóttkví eða 7 daga sóttkví ef farið er í sýnatöku í upphafi og lok sóttkvíar.
  • Erum við eða einhver í okkar nána tengslaneti í áhættuhópi?
  • Er smithættan á þínu búsetusvæði eða á svæðinu sem þú ætlar að ferðast til, mikil eða að aukast?
  • Hvernig höfum við og þau sem við ætlum að heimsækja hagað samskiptum við aðra í tvær vikur fram að brottför? Hafa átt sér stað náin samskipti við aðra en heimilisfólk?
  • Verður erfitt að halda nálægðarmörkin á meðan ferðalagi stendur (flug, rúta og/eða bátur).
  • Er samferðafólk okkar aðrir en heimilisfólkið?

Í ferðalaginu er mælst til þess að fólk noti grímur, forðist að snerta hana, augu, nef og munn. Þá er mikilvægt að við hafa þessar persónulegu sýkingavarnir, halda fjarlægð frá öðru fólki og þvo og spritta hendur.

Bent er á að síðasti dagur til þess að losna úr sóttkví við heimkomu til Íslands er 18. desember. Það má ekki sækja fólk sem ferðast til landsins, þó það séu fjölskyldumeðlimir eða vinir. Það þarf að taka leigubíl, flugrútu, bílaleigubíl eða aka einkabíl frá flugvellinum.

Til rekstraraðila og fyrirtækja

Vinnuveitendur og rekstraraðilar verða að tryggja skilaboð um gildandi reglur og leiðbeiningar á Íslandi komist til starfsmanna. Sérstök áhersla er lögð á að þessari upplýsingar komist til farandverkamanna og þeirra sem eru af erlendum uppruna.

Huga þarf að þrifum, hafa upplýsingar og leiðbeiningar sýnilegar og tryggja að nálægðarmörk séu virt milli ótengdra aðila.

Allar leiðbeiningarnar má finna á vefnum covid.is

Nýjar fréttir