2 C
Selfoss

Framsýni leiðir til jákvæðrar þróunar

Vinsælast

Það er ánægjulegt að sjá að mannfjöldaþróun í Sveitarfélaginu Ölfusi er með jákvæðum hætti og óhætt að segja að sú þróun byggir á þeirri miklu og góðu vinnu sem unnin var á síðasta kjörtímabili.  Í vor skrifaði fyrrverandi bæjarstjóri Ölfuss grein um Þorlákshöfn og þau stóru framfararskref sem stigin voru við höfnina á síðasta kjörtímabili en raunar teygir undirbúningur þeirrar vinnu sig aftur til ársins 2014.  Ljóst er að uppskera góðra verka getur varað í mörg ár og ekki uppsker alltaf sá sem sáir.  Hafnarverkefnið er ekki það eina sem styrkt hefur byggð og búsetukosti í Ölfusi og það eru í raun önnur verkefni sem voru flöskuháls fyrir íbúafjöldaaukningu bæði í Þorlákshöfn og í dreifbýlinu.

Ýldulyktin sem hélt Þorlákshöfn í gíslingu

Það er hægt að berja sér á brjóst í hamingjukasti yfir jákvæðri íbúaþróun í Ölfusi í dag en það er rétt að halda því til haga að lykilforsenda fyrir eftirspurn eftir nýjum byggingarlóðum í þéttbýlinu Þorlákshöfn var lausn á langstærsta vandamáli samfélagsins til margra ára.  Megnan óþef frá fiskþurrkun á hafnarsvæðinu lagði yfir bæinn, sérstaklega á góðviðrisdögum og hreinlega fældi fólk frá staðnum.  Þáverandi bæjarstjóri ásamt forseta bæjarstjórnar, í umboði bæjarstjórnar, leiddu viðræður við Lýsi um flutning á fiskþurrkunarverksmiðju félagsins út fyrir bæinn, á svæði sem valið var með tilliti til fjarlægðar við þéttbýlið og ríkjandi vindáttir.  Það var ekki sjálfgefið að besta niðurstaða fengist úr þessari vegferð og margir höfðu efasemdir.  Forstjóri Lýsis á miklar þakkir skyldar fyrir jákvæða nálgun á verkefnið en bygging nýrrar og sérhannaðrar verksmiðju var langt komin við lok síðasta kjörtímabils.

Fleiri aðila þurfti til svo vel mætti til takast því það svæði sem skipulagt var á þessum tíma var hugsað fyrir sókn í atvinnumálum.  Innviðir þurftu að vera til staðar til samræmis við framtíðarsýn og því gegndu Veitur mikilvægu hlutverki og starfsmenn þar eiga þakkir skyldar fyrir gott samstarf.  Vegagerðin lagði líka hönd á plóg en glæsilegur malbikaður göngu- og hjólastígur liggur milli þéttbýlisins og iðnaðarsvæðisins vestan þess.  Svæðið er stórt og hugsað fyrir umhverfisvæna starfsemi sem mögulega getur haft í för með sér lyktaráhrif.  Á síðasta kjörtímabili voru viðræður hafnar við nokkra aðila um flutning á svæðið, m.a. Síld og fisk og Einingaverksmiðjuna.

Þetta verkefni í heild tókst með eindæmum vel enda geta íbúar Þorlákshafnar nú notið blíðviðris, þurrkað þvott utandyra og haft glugga opna án truflunar frá þessari starfsemi.

Leikskólapláss fyrir börn í dreifbýli Ölfuss o.fl.

Það þarf sterka innviði og skýra framtíðarsýn til að byggja upp öflugt samfélag.  Árið 2014 markaði tímamót fyrir íbúa og búsetuskilyrði í dreifbýli Ölfuss en á því ári var bæði samið um lagningu ljósleiðara í sveitarfélaginu og um kaup Ölfuss á hlut í leikskólum Hveragerðisbæjar.  Yfir 99% heimila í sveitarfélaginu öllu höfðu þá kost á að fá til sín ljósleiðaratengingu hjá Gagnaveitu Reykjavíkur og fóru framkvæmdir að mestu fram á árunum 2014 og 2015.  Þarna var Sveitarfélagið Ölfus á undan flestum sveitarfélögum landsins í slíkri tæknivæðingu sem styrkti innviði dreifbýlisins mikið.  Kaupin á hlut í leikskólum Hveragerðisbæjar voru stórt framfararskref fyrir íbúa dreifbýlisins en mörg árin á undan hafði verið löng bið eftir leikskólaplássum í Hveragerði.  Árið 2017 var svo byggður nýr og glæsilegur leikskóli í Hveragerði með þátttöku Sveitarfélagsins Ölfuss.

Ölfus eignaðist landið undir íbúðabyggðinni í Gljúfurárholti árið 2016 og alla innviði, s.s. götur, stíga, lýsingu og veitur.  Þetta og sú þjónustubót sem að framan er nefnd gerði það að verkum að samfélagið fékk aftur trú á uppbyggingu í Gljúfurárholti.  Boruð var ný neysluvatnshola árið 2017 fyrir dreifbýlisvatnsveituna Berglindi og veituhús byggt yfir holuna.  Þessi framkvæmd var þörf og ljóst að hún myndi hafa gríðarlega jákvæð áhrif á búsetuskilyrði og íbúafjöldaþróun í dreifbýlinu.

Hamingjan er hér!

Auglýsingarátakið „Hamingjan er hér“ er algerlega einstakt á landsvísu, það fór vart framhjá nokkrum landsmanni og verðmæti þess fyrir sveitarfélagið er mikið.  Þegar farið var af stað í undirbúning þess var fyrir séð að ekki væri hægt að opinbera það fyrr en framkvæmdir væru hafnar við nýju fiskþurrkunarverksmiðjuna svo neikvæð áhrif hafði lyktin á allt umtal um staðinn.

Hér er ekki tæmandi talning á jákvæðum verkefnum en sagan sýnir að mikill og jákvæður tími umbreytinga hefur átt sér stað í sveitarfélaginu, horft yfir síðasta áratug.  Upplýsingar um starfsemi Ölfuss á árunum 2014-2018 er hægt að nálgast á vefsíðu sveitarfélagsins olfus.is í greinargerðum með fjárhagsáætlunum þessara ára.

Jákvæð íbúafjöldaþróun í Ölfusi var ekki að byrja á núlíðandi kjörtímabili eins og sjá má á íbúafjöldatölum á vefsíðu Hagstofu Íslands.  Eftirfarandi mynd segir meira en mörg orð:

Gunnsteinn R. Ómarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ölfuss

Sveinn S. Steinarsson, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar Ölfuss

Nýjar fréttir