-0.5 C
Selfoss

Brunavarnir Rangárvallasýslu semja við Trésmiðju Ingólfs á Hellu

Vinsælast

Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu kom saman til fundar þann 20.2.2020 og undirritaði verksamning við Ingólf Rögnvaldsson frá Trésmiðju Ingólfs ehf. um 2. áfanga við byggingu nýrrar slökkvistöðvar á Hellu. Fyrirtæki Ingólfs átti lægsta tilboð í verkið samtals 32.585.507 kr. en kostnaðaráætlun verksins hljóðaði uppá 38.331.646 kr. Umsjón og eftirlit með verkinu af hálfu verkkaupa verður í höndum Ólafs Rúnarssonar aðstoðarmanns byggingarfulltrúa Rangárþings eystra og eldvarnaeftirlitsmanns Brunavarna Rangárvallasýslu bs. Um er að ræða fullnaðarfrágang við framtíðar slökkvistöð Brunavarna Rangárvallasýslu á Hellu. Á neðri hæð hússins verður tækjasalur auk snyrtiaðstöðu en á þeirri efri verður starfsmannarými auk skrifstofuaðstöðu. Heildarverklok eru 15. maí 2020.

Random Image

Nýjar fréttir