-1.1 C
Selfoss

Sætaröðun skar úr um sigurvegara

Vinsælast

Gríðarlega sterk keppni var í gærkvöldi í Suðurlandsdeildinni þar sem keppt var í fjórgangi. Að venju voru 48 knapar úr 12 liðum sem öttu kappi! Frábær stemming var í höllinni og full stúka. Fóðurblandan gaf öllum knöpum í úrslitum fóðurbæti í verðlaun og var einnig með kynningu í anddyri Rangárhallarinnar og þökkum við þeim kærlega fyrir.

Í úrslitum atvinnumanna þurfti sætaröðun til þess að skera úr um sigurvegara og voru það Elin Holst og Gígur frá Ketilsstöðum sem sigruðu en Brynja Amble á Goða frá Ketilsstöðum liðsfélagi hennar í liði Byko varð í öðru sæti. Í úrslitum áhugamanna var Elín Magnea Björnsdóttir á Melódíu frá Hjarðarholti sem sigraði eftir gríðarlega sterk úrslit þar sem 8 knapar áttu sæti. Það var lið Krappa sem sigraði liðakeppnina í fjórgang en lið þeirra átti 3 knapa í úrslitum það voru Lea Schell á Kná frá Korpu sem endaði í 6. sæti í flokki atvinnumanna og í flokki áhugamanna voru það Karen Konráðsdóttir á Lilju frá Kvistum sem endaði í fjórða sæti og Þorgils Kári Sigurðsson á Fák frá Kaldbak endaði í þriðja sæti. Glæsilegur árangur hjá liði Krappa.

Eftir fyrstu tvær keppnirnar er það lið Byko sem leiðir liðakeppnina með 142 stig en lið Húsasmiðjunnar kemur fast á hæla þeirra með 133 stig.

Næsta grein í Suðurlandsdeildinni er fimmgangur sem fram fer þann 3. mars nk.

 

Úrslit atvinnumanna

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Elin Holst / Gígur frá Ketilsstöðum 6,87
2 Brynja Amble Gísladóttir / Goði frá Ketilsstöðum 6,87
3 Sara Sigurbjörnsdóttir / Terna frá Fornusöndum 6,83
4 Hanna Rún Ingibergsdóttir / Ísrún frá Kirkjubæ 6,73
5 Stella Sólveig Pálmarsdóttir / Dökkvi frá Strandarhöfði 6,67
6 Lea Schell / Kná frá Korpu 6,57

Úrslit áhugamanna

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Elín Magnea Björnsdóttir / Melódía frá Hjarðarholti 6,90
2 Katrín Sigurðardóttir / Ólína frá Skeiðvöllum 6,70
3 Þorgils Kári Sigurðsson / Fákur frá Kaldbak 6,53
4 Karen Konráðsdóttir / Lilja frá Kvistum 6,43
5 Edda Hrund Hinriksdóttir / Laufey frá Ólafsvöllum 6,30
6 Renate Hannemann / Spes frá Herríðarhóli 6,10
7 Guðrún Sylvía Pétursdóttir / Ási frá Þingholti 5,93
8 Vilborg Smáradóttir / Gná frá Hólateigi 5,83

Staðan í liðakeppninni

Sæti Lið Stig
1 Byko 142
2 Húsasmiðjan 133
3 Fet / Kvistir 116,5
4 Krappi 115,5
5 Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð 114,5
6 Tøltrider 114
7 Heklu hnakkar 104
8 Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær 96
9 Heimahagi 93
10 Equsana 89,5
11 Fákasel 42
12 Ásmúli 40
Úrslit Atvinnumanna. F.v. Lea Schell, Stella Sólveig Pálmarsdóttir, Hanna Rún Ingibergsdóttir, Sara Sigurbjörnsdóttir, Brynja Amble, Elin Holst, Ólafur Þórisson formaður Geysis, Einar Ásgeirsson frá Fóðurblöndunni, Eiríkur Vilhelm Sigurðarson mótsstjóri Suðurlandsdeildarinnar og Alma Gulla Matthíasdóttir stjórnarmaður í Suðurlandsdeild. Mynd: Eiðfaxi.is
Katrín Ólína Sigurðardóttir 2. sæti, Elín Magnea Björnsdóttir 1. sæti. Ólafur Þórissn formaður Geysis, Eiríkur Vilhelm Sigurðarson mótsstjóri Suðurlandsdeildarinnar, Einar Ásgeirsson frá Fóðurblöndunni og Alma Gulla Matthíasdóttir stjórnarmaður í Suðurlandsdeild. Mynd: Eiðfaxi.is
Úrslit áhugamanna. Mynd: Eiðfaxi.is

Nýjar fréttir