3.9 C
Selfoss

Söfnun jólatrjáa í Sveitarfélaginu Árborg

Vinsælast

Laugardaginn 11.janúar 2020 verða jólatrén hirt upp í Sveitarfélaginu Árborg. Íbúar geta þá sett jólatrén sín út á gangstétt eða lóðamörk og verða þau þá fjarlægð.

Mikilvægt að trén séu sýnileg frá götu þannig að auðvelt sé að fjarlægja þau. Farið verður af stað í söfnunina um kl. 10:00 laugardaginn 11.janúar og mikilvægt er að trén séu komin að gangstétt/lóðarmörkum þá.

Ekki verður um frekari safnanir að ræða á jólatrjám í sveitarfélaginu þetta árið en einstaklingar geta komið jólatrjánum sínum niður á gámasvæði Sveitarfélagsins Árborgar í Víkurheiði á opnunartíma.

Íbúar eru einnig hvattir til að ganga vel um og hreinsa upp eftir flugelda, sprengjur, kökur og fleira sem fellur til eftir nýárs- og þrettándagleði.

Nýjar fréttir