7.1 C
Selfoss

Vel heppnaður forvarnardagur í Árborg

Vinsælast

Miðvikudaginn 2. október síðastliðinn fór Forvarnardagur Árborgar fram í 6. skiptið. Forvarnardagurinn er haldinn á landsvísu fyrsta miðvikudag október ár hvert en grunnskólarnir þrír í Árborg hafa haldið sérstaklega upp á daginn með því að setja upp dagskrá hannaða af forvarnarteymi Árborgar, deildarstjórum unglingastiga grunnskólanna og Ungmennafélagi Selfoss.

Í ár var dagskráin mjög metnaðarfull eins og fyrri ár en það eru nemendur 9. bekkja skólanna sem eru þátttakendur í deginum. Nemendur hittust í Bíósalnum á Selfossi í upphafi dags þar sem þeir hlýddu á hvatningarorð frá Alfreð Elíasi Jóhannssyni, þjálfara meistaraflokks kvenna í knattspyrnu og ávarp frá Forseta Íslands. Að því loknu var nemendum skipt í hópa, þvert á skóla þar sem þeir fóru á milli stöðva sem allar höfðu mikið og gott forvarnargildi. Nemendur fengu fræðslu frá Lögreglunni, félagsmiðstöðinni Zelsíuz, Björgunarsveit Árborgar, World Class og CrossFit á Selfossi. Að lokinni dagskrá var nemendum boðið í grillaðar pylsur og fernudrykk.

Nýjar fréttir