-0.9 C
Selfoss

Sr. Ingólfur kveður Kirkjubæjarklaustur

Vinsælast

Guðsþjónusta var í bænhúsinu á Núpsstað sunnudaginn 4. ágúst sl., en hefð er fyrir því að hafa guðsþjónustu í bænhúsinu um verslunarmannahelgina. Zbigniew Zuchowicz lék á orgelið og félagar úr kirkjukór Prestsbakkakirkju og Ásakórnum leiddu söng. Á eftir messu var boðið upp á kirkjukaffi sem hjónin á Hvoli Guðný og Hannes stóðu fyrir en þau hjálpuðu einnig við undirbúning messunnar. Björn Helgi Snorrason var hringjari og Ragnheiður Hlín Símonardóttir var meðhjálpari.

Þetta var jafnframt kveðjumessa Sr. Ingólfs Hartvigssonar en hann hefur sagt stöðu sinni sem sóknarprestur Kirkjubæjarklaustursprestakalls lausri. Hann hefur jafnframt verið fastráðinn sem sjúkrahúsprestur við Landspítala háskólasjúkrahús.

„Ég þakka fyrir öll þau góðu ár sem ég og fjölskylda mín fengum í Skaftárhreppi. Ég vil þakka fyrir vinarhug og góðar stundir. Sérstaklega vil ég þakka öllu því góða fólki sem hefur gefið sér tíma til að starfa fyrir söfnuði sína og kirkju í Kirkjubæjarklaustursprestakalli. Sóknarnefndarfólki, kirkjuvörðum, meðhjálpurum, hringjurum, organistum, tónlistarfólki, söngfólki, kórfólki og fleirum og fleirum. Ég þakka Guði fyrir dvöl mína og þjónustu í Kirkjubæjarklausturspresta,“ segir sr. Ingólfur.

 

Random Image

Nýjar fréttir