10 C
Selfoss
Home Fréttir Hamingjan við hafið í Þorlákshöfn í fyrsta sinn

Hamingjan við hafið í Þorlákshöfn í fyrsta sinn

0
Hamingjan við hafið í Þorlákshöfn í fyrsta sinn

Hamingjan við hafið verður haldin í Þorlákshöfn í fyrsta sinn dagana 6.-11. ágúst nk. Hátíðin er byggð á góðum grunni Hafnardaga sem voru haldnir aðra helgina í ágúst um árabil en Hamingjan við hafið verður öllu stærri í sniðum með fjölbreyttri og spennandi dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Dagskráin hefst þriðjudaginn 6. ágúst og nær hápunkti föstudagskvöldið 9. ágúst með ókeypis stórtónleikum í Skrúðgarðinum þar sem fram koma hljómsveitirnar No Sleep, GDRN, Daði Freyr og Baggalútur ásamt leynigesti. Á staðnum verða einnig leiktæki frá Sprell og ilmandi matarvagnar.

Það má segja að þessi hápunktur haldist yfir alla helgina þar sem dagskrá laugardags og sunnudags verður ævintýri líkust og hugsuð þannig að allar kynslóðir geti notið sín saman. Á laugardeginum gefst fólki kostur á að prófa sjóbretti og skella sér í rib bátaferð og Sunnlenska götubitakeppnin verður haldin í fyrsta sinn auk þess sem pop up gallerý verður í gömlu bræðslunni alla helgina. Þá verður ljósmyndasýning, sandkastala- og dorgveiðikeppni, barna- og fjölskylduskemmtun í Skrúðgarði þar sem meðal annars verður leikvöllur með opnum efniviði, fjölskyldubollywood, sirkusatriði, leikhópurinn Lotta, hoppukastalar og margt fleira.

Á laugardagskvöldinu munu hverfin bjóða gestum í partý í gömlu bræðslunni við Hafnarskeið. Þar verður léttur partýmatur á boðstólnum, lifandi tónlist og að sjálfsögðu allt skreytt í réttu hverfalitunum. Í framhaldi af hverfapartýunum mun Jarl Sigurgeirsson leiða bryggjusöng við varðeld í portinu hjá gömlu bræðslunni sem endar svo með glæsilegri flugeldasýningu.

Sunnudagurinn 11. ágúst verður enginn rólegheitadagur í höfuðborg hamingjunnar, Þorlákshöfn. Þá verður hver leiksýningin á fætur annari, frítt á Jarðhitasýningu Orku náttúrunnar í Hellisheiðarvirkjun þar sem hamingjusamasta lúðrasveit landsins tekur á móti gestum með hressandi lúðrablæstri. Síðasti dagskráliður Hamingjunnar við hafið verður í Selvoginum, þar sem draugasöguganga leggur af stað kl. 21 undir handleiðslu Jóa Davíðs.

Langflestir dagskráliðir verða gestum að kostnaðarlausu og tjaldsvæðin við sundlaugina verða stækkuð svo nóg pláss verður fyrir fjölskyldur að tjalda. Það verður hvergi betra að vera en einmitt í Hamingjunni við hafið í Þorlákshöfn helgina eftir verslunarmannahelgi.

Facebook síða Hamingjunnar https://www.facebook.com/hamingjanvidhafid/