-0.5 C
Selfoss

Á 130 með þriggja ára barn laust í bílnum

Vinsælast

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að Lögregluþjónar við hraðaeftirlit stöðvuðu í gærkvöldi erlendan ferðamann á Mýrdalssandi þar sem hann ók á hátt í 130 km hraða. Þegar lögreglumaður var að boða ökumann yfir í lögreglubifreiðina veitti hann því athygli að í aftursæti bifreiðarinnar sátu þrír farþegar og kom í ljós að einn þeirra sat undir 3 ára barni og barnið því laust í bifreiðinni.

Fékk ökumaður væna sekt fyrir hraðaksturinn ásamt því að foreldrarnir þurftu einnig að greiða sekt fyrir að vera ekki með barnið í viðeigandi barnabílsstól, sem þó var til staðar í bifreiðinni.

Þá bendir Lögreglan á að nokkuð hafi verið um þungstíga, unga ökumenn á leið á Borgarfjörð eystri á hátíðina Bræðsluna. Þeir hafa umsvifalaust verið stöðvaðir og sektaðir af lögreglu.

Þá hefur það aukist talsvert að ekið hefur verið á sauðfé í umdæminu og vill lögregla beina þeim tilmælum til ökumanna að virða hámarkshraða og hafa það í huga að sauðkindin er víða á beit í háu grasinu sem liggur víða hátt og þétt upp við vegaxlir á þjóðvegi 1.

 

Random Image

Nýjar fréttir