2.8 C
Selfoss

Sumarlestri Bókasafnsins lauk með skemmtilegum ratleik

Vinsælast

Sumarlestri Bókasafns Árborgar á Selfossi lauk fimmtudaginn 27. júní sl. með ratleik. Sumarlestur er ókeypis lestrarhvetjandi námskeið fyrir krakka í 2.–5. bekk. Þau mega vera yngri eða eldri en viðmiðið er að þau séu orðin stautfær í lestri. Í sumar voru tæplega 90 börn skráð til leiks en sumarlestur hefur verið haldinn í júní á hverju ári, frá árinu 1993, í Bókasafni Árborgar á Selfossi. Síðastliðin fjögur ár hafa 80–100 börn verið skráð í þennan stærsta viðburð ársins hjá bókasafninu. Börnunum hefur verið skipt í tvo hópa og hittast þeir einu sinni í viku allan júnímánuð þar sem börnin fá ýmist fræðslu eða skemmtun. Í hverri viku er síðan dregið í happdrætti þar sem börnin fá skemmtilega vinninga í tengslum við þema sumarlestursins.

Mikill metnaður lagður í verkefnið
Markmið sumarlestrar er að viðhalda lestrarhæfni barna yfir sumartímann, örva áhuga þeirra á lestri skemmtilegra bóka og tengja heimsókn á bókasafnið við skemmtilegheit í huga barnanna.

Í sumar var þemað „Risaeðlur“ og var barnadeildin skreytt í samræmi við það. Starfsmenn sumarlestursins lögðu mikinn metnað í hönnun og vinnslu allra skreytinga í tengslum við sumarlesturinn. Skreytingarnar munu hanga uppi á veggjum barnadeildar fram að næsta sumarlestri fyrir þá sem vilja líta dýrðina augum.

Í ár fékk sumarlesturinn veglegan styrk frá tryggingafélaginu TM. Starfsmenn bókasafns Árborgar vilja nota tækifærið og þakka öllum þeim börnum sem mættu á sumarlesturinn í ár og eins TM fyrir stuðninginn. „Það gladdi okkur mikið hversu stór hópurinn var og hve dugleg þau voru að mæta á fimmtudögum til okkar með vini sína, frændur og frænkur og ekki síst gladdi það okkur hvað þau tóku margar bækur með sér heim að lesa. Við vonumst til að sjá þau sem flest áfram í allt sumar,“ segir í tilkynningu frá starfsmönnum bókasafnsins.

Nýjar fréttir