Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að vettvangsvinnu vegna umferðaslyss sem varð rétt vestan við Hvolsvöll fyrr í dag sé lokið og búið að opna fyrir umferð.
Ekki er hægt að upplýsa um ástand hinna slösuðu en þeir voru fluttir til aðhlynningar í Reykjavík.
Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir en ekki er vitað um tildrög þess að svo stöddu.