5.6 C
Selfoss

Ofsaakstur við Kirkjubæjarklaustur

Vinsælast

Erlendur ferðamaður á bílaleigubifreið var stöðvaður seint í gærkvöldi á Suðurlandsvegi í Eldhrauni skammt vestan Kirkjubæjarklausturs, en hann mældist á 164 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klst. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum á staðnum en sektargerð verður gerð vegna málsins.

Ökumaðurinn gaf þá skýringu á ökuhraða sínum að hann væri orðinn alltof seinn á hótelið þar sem hann og ferðafélagi hans höfðu pantað næturgistingu. Farþegi bifreiðarinnar var með gild ökuréttindi og gat því tekið við akstri bifreiðarinnar.

Örfáum mínútum áður hafði annar erlendur ferðamaður verið stöðvaður á sama vegarkafla á 140 km á klst.

Frétt af Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Nýjar fréttir