-0.6 C
Selfoss

Margir nýir í Sindratorfærunni á Hellu á laugardag

Vinsælast

Sindratorfæran fer fram á Hellu laugardaginn 4. maí og hefst keppnin kl. 11. Að sögn Kára Rafns Þorbergssonar, hjá Björgunarsveitinni á Hellu, er m ikil spenna er í fólki þar sem þetta er fyrsta umferð Íslandsmótsinns og upphaf keppnistímabilsinns.

„Nítján keppendur er skráðir til leiks. Ef keppendalistinn er skoðaður má sjá mörg ný nöfn. Þrír nýjir ökumenn eru í götubílaflokki og fimm í sérútbúnum, þar af eru tveir breskir keppendur sem koma á vegum Topgear og ætla að sýna Íslendingunum hvernig á að gera þetta. Bílarnir eru búnir að taka breytingum í vetur, búið að skipta um vélar í einhverjum og sennilega búið að skrúfa hverja skrúfu tíu sinnum og bæta nokkrum við í hverjum einasta. Einhverjir verða á nýsmíðuðum bílum sem aldrei hafa sést áður og aðrir búnir að breyta það mikið að þeir eru nánast óþekkjanlegir. Þeir keppendur sem hafa verið að slást um titilinn undanfarin ár eru að sjálfsögðu á listanum. Má þar nefna Íslandsmeistarann Þór Þormar Pálson á Thor, Ingólf Guðvarðarson á Guttanum, Geir Evert Grímsson og Hauk Viðar Einarsson og fleiri í sérútbúna flokknum. Steingrímur Bjarnason á Strumpnum situr hinsvegar einn gamalreyndur í götubílaflokknum með þrjá nýliða með sér,“ segir Kári Rafn.

Akstursíþróttasvæði Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu er rétt austan við Hellu (um ein klst. frá Reykjavík) og hefur sjaldan litið betur út. Búið er að leggja mikinn metnað í svæðið og brautirnar. Kári Rafn segir að áin og mýrin verði að sjálfsögðu á sínum stað auk brauta í börðum og sandbrekkum, mjög hraðri tímabraut þar sem oft verða mikil tilþrif í. 

Flugbjörgunarsveitin á Hellu hefur haldið keppnina nær óslitið síðan 1974 og því engir nýgræðingar í því að gera gott mót. Torfæran er áhorfendavæn, fjölskylduvæn og bráðskemmtileg með mikið fyrir augað og eyrað.

Random Image

Nýjar fréttir