1.7 C
Selfoss

Jötunnhlaupið á 1. maí

Vinsælast

Hlaupahópurinn Frískir Flóamenn, í samstarfi við Jötunn Vélar, stendur fyrir Jötunnhlaupinu á Selfossi þann 1. maí, nk. og hefst það kl. 13:00. Vegalengdir eru 10 km og 5 km tímataka með flögum. Forskráning er á hlaup.is og lýkur 30. apríl kl. 21.00. Einnig verður hægt að skrá sig í Jötunn Vélum frá kl. 11:00 á hlaupadegi, þá verða keppnisnúmer jafnframt afhent. Skráningu lýkur kl. 12:20. Lengd beggja hlaupa er löglega mæld samkvæmt reglum FRÍ. Hlaupin hefjast og enda við húsakynni Jötunn Véla á Selfossi. Brautirnar eru marflatar og hlaupið er á bökkum Ölfusár.

Þátttökugjald er kr. 2.500 fyrir 16 ára og eldri en kr. 1.500 fyrir 15 ára og yngri. Keppendur fá frían aðgang í Sundhöll Selfoss eftir hlaup.

Vegleg sérverðlaun frá Jötunn Vélum verða fyrir fyrsta karl og konu í hvorri vegalengd fyrir sig. Jafnframt verða verðlaun fyrir fyrsta keppenda í hverjum aldursflokki og útdráttarverðlaun. Nú er bara að reima á sig skóna og hlaupa út í vorið.

Æfingar Frískra Flóamannna eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss og eru allir velkomnir, engin þátttökugjöld.

Random Image

Nýjar fréttir