2.3 C
Selfoss
Home Fréttir Leiklistarnemendur í FSu frumsýndu Írisi

Leiklistarnemendur í FSu frumsýndu Írisi

0
Leiklistarnemendur í FSu frumsýndu Írisi
Úr verkinu Iris eftir Brynhildi Guðjónsdóttur.

Nemendur í leiklist í FSu hafa ekkisetið auðum höndum undanfarið. Þau frumsýndu verkið Iris eftir Brynhildi Guðjónsdóttur og Ólaf Egil Egilsson í leikstjórn Guðfinnu Gunnarsdóttur, miðvikudaginn 10. apríl sl. Litla leikhúsinu við Sigtún.

Verkið fjallar um fjallar um viðburðaríkt líf Irisar, ungrar stúlku, sem á erfitt með að fóta sig í grimmum heimi.

Hópurinn hefur lagt mikið á sig til að æfa undanfarið og mætt á æfingar utan skólatíma. Hópurinn er í góðu samstarfi við Leikfélag Selfoss sem veitir hópnum aðgang að húsnæði sínu og aðstoðar við ljósahönnun og kynningar.

Verkið verður einning sýnt í Hveragerði á lokahátið Þjóðleiks á Suðurlandi þann 27. apríl.

Þjóðleikur er leiklistarverkefni haldið að frumkvæði Þjóðleikhússins í samstarfi við fjölmarga aðila á landsbyggðinni. Leikhópum ungs fólks á aldrinum 13–20 ára er boðið að setja upp eitt af þremur nýjum leikverkum sem skrifuð eru sérstaklega fyrir Þjóðleik í hvert sinn. Við uppsetninguna njóta ungmennin stuðnings fagaðila í Þjóðleikhúsinu í formi námskeiða, bæði í Þjóðleikhúsinu og í heimabyggð, og lýkur verkefninu með leiklistarhátíð í viðkomandi landshluta.

Sami hópur tók einnig þátt í tónleikunum „Raddir sunnlenskra ungmenna“, sem er samstarfsverkefni með Unglingakór Selfosskirkju. Tónleikarnir voru í Selfosskirkju sunnudaginn 7. apríl sl.