8.9 C
Selfoss

Frábært Ungmennaþing í Rangárþingi ytra

Vinsælast

Um 40 ungmenni, á aldrinum 13–25 ára, voru saman komin í gærkvöldi þar sem fram fór í annað sinn Ungmennaþing á vegum UngRy (Ungmennaráðs Rangárþings ytra). Ungmennaþingið er vettvangur fyrir ungt fólk í sveitarfélaginu til þess að koma saman, ræða saman og koma skoðunum sínum á framfæri.

Hugrún Pétursdóttir, varamaður í sveitarstjórn, setti þingið og Rebekka Rut Leifsdóttir, aðalmaður Rangárþings ytra í Ungmennaráði Suðurlands, kynnti hlutverk Ungmennaráðs og sagði um leið frá þeim tækifærum sem hún hefur fengið sem fulltrúi í Ungmennaráði Suðurlands. Mál málanna á Ungmennaþingi eru umræðuhópar, en þá er skipt upp í fjóra minni hópa sem svo fara á mismunandi umræðustöðvar. Umræðustöðvunum var stýrt af meðlimum Ungmennaráðs sem svo höfðu með sér ritara. Ungmennaráð mun í kjölfarið taka saman helstu niðurstöður umræðuhópanna og kynna fyrir sveitarstjórn.

Dagný Rós ásamt Evu Ruzo og Hjálmari Erni.

Snapchat stjörnurnar Eva Ruzo og Hjálmar Örn enduðu svo þingið á því að ræða um sig sem samfélagsmiðlastjörnur, hvernig það gengur fyrir sig ásamt almennum umræðum um lífið. Frábært þing og á UngRy mikinn heiður skilið fyrir að halda það.

Nýjar fréttir