-0.5 C
Selfoss

Ályktun frá sveitarstjórn Skaftárhrepps

Vinsælast

Sveitarstjórn Skaftárhrepps hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun;

„Sveitarstjórn Skaftárhrepps lýsir yfir vonbrigðum sínum með framkomið frumvarp  til laga um breytingu á lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru

Með breytingum á ofangreindum lögum er verið að tefla í tvísýnu lýðheilsu þjóðarinnar, ógna hreinleika íslenska búfjárstofnsins auk þess sem grafið er undan fæðuöryggi Íslendinga.

Sveitarstjórn Skaftárhrepps  hvetur íslensk stjórnvöld til að kanna til hlítar hvort ekki megi endurskoða viðkomandi ákvæði innan EES samningsins með það að markmiði að sækja um undanþágu fyrir Ísland vegna sérstöðu landsins m.a. með tilliti til  lítillar notkunar á sýklalyfjum í landbúnaði og alþjóðlegra skuldbindinga hvað varðar verndun íslenskra búfjárkynja.

Sveitarstjórn  gagnrýnir einnig hversu skammt á veg undirbúningur fyrirhugaðra mótvægisaðgerða virðist vera kominn og styður framkomnar kröfur um að innflutt kjöt og egg verði ekki leyst úr tolli fyrr en Matvælastofnun  hefur staðfest með sýnatöku að ekki séu sýklalyfjaónæmar bakteríur til staðar í viðkomandi vörum.“

Nýjar fréttir