3.4 C
Selfoss

Skýrsla um stjórnsýslu, rekstur og fjármál Árborgar birt

Vinsælast

Haraldur L. Haraldsson var fenginn til þess að vinna úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Sveitarfélagsins Árborgar. Í kjölfarið vann hann skýrslu sem nú hefur verið gerð opinber. Búið var að kynna hluta skýrslunnar á íbúafundi sem haldinn var fyrir nokkru. Skýrslan var ekki birt fyrr en að bæjarfulltrúar og aðrir hefðu fengið tækifæri til að kynna sér innihald hennar. Í tilkynningu á vef Árborgar segir: „Í skýrslunni eru settar fram 132 tillögur um mögulegar breytingar í rekstri og skipuriti Sveitarfélagsins Árborgar. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær, 27. febrúar, að tillögum skýrslunnar verði vísað til úrvinnslu hjá bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar, í samstarfi við starfsfólk sveitarfélagsins og þeim falið að leggja fram fyrir næsta fund bæjarstjórnar tímasetta aðgerðaráætlun þar sem því verður lýst hvernig brugðist verður við tillögunum og unnið úr þeim.“

Hlekkur á skýrsluna er hér

Random Image

Nýjar fréttir