6.7 C
Selfoss

Nafn mannsins sem leitað er að í Ölfusá

Vinsælast

Maðurinn sem leitað hefur verið að í og við Ölfusá frá því á mánudagskvöld heitir Páll Mar Guðjónsson. Hann er fæddur 28. júlí 1968 og er til heimilis að Stekkholti 11 á Selfossi. Hann er ókvæntur og barnlaus.

Veður til leitar batnaði í gær og var leitað fram í myrkur. Aftur var hafist handa við leit í morgun og bakkar Ölfusár gengnir niður með ánni.

Aðstandendur hans vilja þakka viðbragðsaðilum umfangsmikið og óeigingjarnt starf við leitina.

Nýjar fréttir