12.8 C
Selfoss

Íbúar Árborgar beðnir um að fara sparlega með heitt vatn

Vinsælast

Á heimasíðu sveitarfélagsins Árborgar kemur fram að óskað sé eftir að íbúar fari sparlega með heitt vatn vegna mikillar kuldatíðar næstu daga.

„Fólk getur sparað heitt vatn og þar með kyndikostnað sinn með því að gæta að því að gluggar séu ekki opnir og útidyr ekki látnar standa opnar lengur en þörf er á. Þá skipta einnig máli stillingar ofna – að óþarflega heitt vatn renni ekki frá þeim – og að ofnarnir séu ekki byrgðir, til dæmis með síðum gluggatjöldum eða húsgögnum. Þá eru heitir pottar við heimili talsvert þurfta frekir á vatnið. Biðjum íbúa afsökunar á þessum óþægindum en þökkum um leið fyrir skilninginn því aðgerðir allra íbúa skipta máli við þessar aðstæður,“ segir í tilkynningunni.

Nýjar fréttir