0.3 C
Selfoss

Skákkennsla grunnskólabarna

Vinsælast

Fischersetrið á Selfossi mun í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg og Skákskóla Íslands standa fyrir skákkennslu fyrir grunnskólabörn í Fischersetrinu á laugardögum frá kl. 11.00–12.30. Yfirumsjón með kennslunni hefur Helgi Ólafsson, stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands.  Alls verða þetta tíu laugardagar og fyrsti tími verður laugardaginn 12. janúar n.k.

Þeir sem hafa áhuga á skákkennslunni eru beðnir um að  mæta u.þ.b. 30 mínútum  áður en fyrsta æfing hefst til að ganga frá skráningu og greiðslu nemendagjalds sem er 4.500 krónur fyrir þessi tíu skipti. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 894 1275 eða með því að senda tölvupóst á netfangið fischersetur@gmail.com.

 

Random Image

Nýjar fréttir