0.3 C
Selfoss

Guðjón Baldur og Ísak með brons í Þýskalandi

Vinsælast

U-19 ára landslið karla vann til bronsverðlauna á Sparkassen Cup í Þýskalandi, en mótið fór fram á milli jóla og nýárs. Með liðinu voru þeir Guðjón Baldur Ómarsson og Ísak Gústafsson.

Ísland spilaði gegn Saar, Hollandi og Danmörku í riðlinum. Þeir gerðu 25-25 jafntefli gegn Saar og unnu Hollending og Dani nokkuð sannfærandi. Í undanúrslitum tóku þeir á móti sterku liðið Tékka. Þeir steinlágu gegn Tékkum og mættu því Dönum í leik um bronsið. Þar unnu þeir Dani auðveldlega 29-23.

Leikir Íslands:

Ísland 25-25 Saar (Guðjón 1, Ísak 1)
Ísland 31-15 Holland (Ísak 3, Guðjón 2)
Ísland 23-18 Danmörk (Guðjón 4)

Undanúrslit: Ísland 24-29 Tékkland (Ísak 1)

Úrslit: Ísland 29-23 Danmörk (Guðjón 6, Ísak 2)

Næstu verkefni liðsins er 4 liða mót í Þýskalandi í júní og þá HM í Makedóníu í  byrjun ágúst.

Random Image

Nýjar fréttir