-0.9 C
Selfoss

Kvenfélag Hraungerðishrepps 85 ára

Vinsælast

Kvenfélag Hraungerðishrepps var stofnað 5. mars 1933 af tuttugu og sex konum og hefur það starfað óslitið síðan. Félagið á því 85 ára afmæli í ár. Í dag starfa þrjátíu og fimm konur á öllum aldri í félaginu og ávallt eru grunngildin þau sömu: að láta gott af sér leiða, vera til staðar, styðja og styrkja þar sem þörf er hverju sinni.

Í Flóahreppi eru starfrækt þrjú kvenfélög. Ásamt Kvenfélagi Hraungerðishrepps eru starfandi Kvenfélag Villingaholtshrepps og Kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps. Kvenfélögin hafa alla tíð látið nærsamfélagið skipta mestu máli og verið þáttakendur í 17. júní-hátíðarhöldunum, vorhátíðinni Fjör í Flóa og einu sinni á ári bjóða kvenfélögin öllum eldri borgurum Flóahrepps í dagsferð.

Kvenfélögin þrjú standa fyrir handverksbasar annað hvert ár þar sem allur ágóði fer í fyrirfram ákveðið málefni, nú síðast til tækjakaupa í sjúkrabíla HSU. Á starfssvæði Kvenfélags Hraungerðishrepps hefur ennfremur séð um jólatrésskemmtun fyrir börnin og allir íbúar eldri en 75 ára eru heimsóttir á aðventunni þar sem þeim er afhentur smá glaðningur. Til þess að geta sinnt þessum verkefnum aflar félagið fjár með ýmsum hætti s.s. veitingasölu, dúkaleigu o.fl. Auk þessa tak akonurnar þátt í verkefnum Sambands sunnlenskra kvenna og Kvenfélagasambands Íslands.

Í gegnum tíðina hefur Kvenfélag Hraungerðishrepps staðið fyrir ýmis konar námskeiðum og fyrirlestrum fyrir félagskonur, t.d. í jólakortagerð, ávaxtaútskurði, gamla krosssaumnum og konfektgerð. Á hverju ári er farið í vorferð og á haustin er farið í sumarbústað þar sem kvenfélagskonur gera sér glaðan dag. Þessar ferðir eru alltaf vel sóttar og ríkir mikil ánægja með þær. Einnig hafa konurnar farið í ferðir erlendis, t.d. í jólaferð til Þýskalands.

Það er skemmtilegt og gefandi að starfa í kvenfélagi þar sem samheldni og samstaða ríkir og allir stefna að því sama þar sem mannauðurinn fær að njóta styrkleika sinna.

Kvenfélag Hraungerðishrepps óskar Sunnlendingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.

Random Image

Nýjar fréttir