3.4 C
Selfoss

Ljósmæðrum og hjúkrunarfræðingum heimilað að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum

Vinsælast

Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra sem kveður á um að ljósmæðrum og hjúkrunarfræðingum sé heimilt að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Frumvarpið var samþykkt óbreytt með öllum greiddum atkvæðum. Markmiðið með þessu er að bæta aðgengi kvenna, einkum ungra kvenna, að kynheilbrigðisþjónustu og nýta betur fagþekkingu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra.

Við undirbúning þessarar lagabreytingar var horft til breytinga sem unnið hefur verið að í tengslum við þau ákvæði laga nr. 25/1975 sem lúta að fræðslu og ráðgjöf um notkun getnaðarvarna og útvegun þeirra. Lagabreytingin samræmist einnig markmiðum gildandi þingsályktun um lyfjastefnuum að veita sérmenntuðum hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum takmarkaðan rétt til að ávísa tilteknum lyfjum. Loks var við lagasetninguna höfð hliðsjón af skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á kynheilbrigði og þriðja heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem lýtur að heilsu og vellíðan og felst í því að tryggja almennan aðgang að heilbrigðisþjónustu á sviði kynheilbrigðis.

Heimildin verður skilyrt

Heimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum verður háð þeim takmörkunum að viðkomandi starfi á heilbrigðisstofnun þar sem heilsugæslu-,  kvenlækninga- eða fæðingarþjónusta er veitt. Heimildin er jafnframt bundin við leyfi sem landlæknir veitir að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum sem sett verða í reglugerð. Meðal þeirra skilyrða er að viðkomandi hafi sótt og staðist fræðilegt og klínískt námskeið um lyfjaávísanir.

Nýjar fréttir