-1.6 C
Selfoss

Krónan veitir samfélagsstyrki á Suðurlandi

Vinsælast

Árlega veitir Krónan sex milljónir króna í samfélagsstyrki til verkefna sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og verkefna sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í samfélaginu. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir: „Það var sönn ánægja að styrkja öll þessi góðu samtök og félög í ár og fór fjöldi umsókna fram úr björtustu vonum. Það verður alltaf meiri og meiri áskorun að velja úr hópi umsækjenda ár hvert og var valið því afar erfitt í ár. Það er ljóst að það er mikill metnaður fyrir því að bæta heilsu og hreyfingu barna í samfélaginu öllu, sem og þeirra sem vilja hafa jákvæð áhrif hvað þessi mál varðar. Það er mikið gleðiefni og erum við stolt að geta verið þátttakandi í þessari þróun.“

Eins og fram kom sótti fjöldi aðila um styrki og hlutu nokkur sunnlensk verkefni styrk að þessu sinni. Þau eru:
Pokastöð Árborgar til uppbyggingar á pokastöðvum í Árborg.
Körfuknattleiksdeild á Selfossi fyrir barnastarfið sitt.
Knattspyrnudeild Selfoss fyrir uppsetningu á Pannavelli.
Handknattleiksdeild á Selfossi fyrir barna- og unglingastarf sitt.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu fyrir nýjan björgunarbúnað.
Regnbogahátíðin í Vík fyrir veitingar í menningarveislu hátíðarinnar.
Bókasafn Vestmannaeyja fyrir heimsóknir barnabókahöfunda til Vestmannaeyja.
ÍBV fyrir Akademíu barna og unglinga.
Fiðlufjör á Hvolsvelli fyrir tónlistarnámskeið barna.
Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli fyrir aðfangakostnað.
Knattspyrnufélagið Ægir í Þorlákshöfn fyrir barnastarf sitt.

Random Image

Nýjar fréttir