-1.6 C
Selfoss

ML fær fjórða Grænfánann

Vinsælast

Gott starf í umhverfismálum er unnið við Menntaskólinn á Laugarvatni er í samstarfi við Landvernd. Skólinn hefur yfir að ráða flottri umhverfisnefnd sem í sitja áhugasamir nemendur er vinna að því að gera skólann umhverfisvænni. Annað hvert ár þurfa skólar að sækja um nýjan Grænfána og nú í haust var komið að því hjá skólanum. Fyrr í haust kom Katrín Magnúsdóttir, fulltrúi frá Landvernd, og tók út starfið hjá skólanum. Hún hélt jafnframt fyrirlestur um plast og leiðir til að minnka notkun á því. Þann 13. nóvember sl. kom Katrín svo aftur, færandi hendi með nýjan Grænfána og skjal sem verður rammað inn og hengt upp. Umhverfisnefndin tók fagnandi við fánanum og flaggaði honum, en gamla fánann máttu þau eiga til minningar.

Katrín minntist á það í ræðu við athöfnina, að hún væri mjög hrifin af kraftinum í umhverfisnefndinni og að krakkarnir í nefndinni væru góð fyrirmynd fyrir aðra. Hún tók sem dæmi er hún fékk að skoða herbergi hjá einum í nefndinni. Þar var búið að setja upp fullkomið sorpflokkunarkerfi.

Nýjar fréttir