-1.6 C
Selfoss

Leikhópur Vallaskóla sýnir Dúkkulísu

Vinsælast

Föstudaginn 23. nóvember sýnir leikhópur Vallaskóla leikritið „Dúkkulísa“ eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttir. Sýningin hefst kl. 19 og er í austurrými Vallaskóla. Leikhópurinn er samansettur af tólf nemendum úr 8.–10. bekk Vallaskóla. Hópurinn hefur æft undanfarið undir stjórn Heru Fjord leikstjóra og er sýningin hluti af Þjóðleik, leiklistarhátíð á vegum Þjóðleikhússins. Frítt er inn fyrir 18 ára og yngri en almennt gjald er 500 kr. Aðgangseyrir fer í ferðasjóð leikhópsins sem mun ferðast á leiklistarhátíðina snemma á næsta ári. Allir eru velkomnir.

Random Image

Nýjar fréttir