8.4 C
Selfoss

Fimleikafólk frá Selfossi stóð sig vel með landsliðum á Evrópumóti

Vinsælast

Dagana 17.–20. októ­ber sl. fór Evrópumótið í hópfimleikum fram í Portúgal. Ísland sendi fjögur landslið til leiks. Liðin náðu öll frábærum árangri og komust öll upp úr undanúrslitunum, sem voru hald­in á miðvikudag og fimmtudag. Á föstudeginum og laugardegin­um fóru úrslitin fram, þar sem sex lið kepptu um Evrópumeist­aratitil.

Kvennalið Íslands varð í 2. sæti, blandað lið fullorðinna landaði 3. sæti, stúlknaliðið tók 2. sæti og blandað lið unglinga náði 4. sæti. Virkilega góð frammi­staða.

Fimleikafólk sem á rætur að rekja til fimleikadeildar Selfoss lagði sitt af mörkum á þessu móti. Birta Sif Sævarsdóttir sem æfir með 1. flokki á Selfossi keppti með blönduðu liði unglinga og átti gott mót. Tanja Birgisdóttir, sem þjálfar Birtu Sif, var landsliðsþjálfari í þessu verkefni og þjálfaði bland­að lið fullorðinna. Í blönduðu liði fullorðinna voru tveir keppendur sem æfðu lengi vel á Selfossi, þau Eysteinn Máni Oddsson og Anna María Steingrímsdóttir. Þau æfa nú bæði með félagsliðum á höfuðborgar­svæð­inu. Einnig keppti Margrét Lúð­vígsdóttir með kvennaliðinu, en hún æfði lengst af með fim­leika­deild Selfoss og er í dag þjálfari hjá deildinni. Hekla Björt Birkis­dóttir úr Hveragerði keppti með stúlknalandsliðinu á mótinu, en hún æfði einnig á Selfossi um tíma. Þá var Bergþóra Kristín Ingvars­dóttir, framkvæmdastjóri fimleikadeildar Selfoss, einnig á mótinu að sinna störfum fyrir Fimleikasamband Íslands og Olga Bjarnadóttir, fyrrverandi fram­kvæmdastjóri deildarinnar, að sinna störfum dómara.

Nýjar fréttir