12.8 C
Selfoss
Home Fréttir Safna fé í Krónunni á Selfossi til styrktar fólki í hjólastólum

Safna fé í Krónunni á Selfossi til styrktar fólki í hjólastólum

0
Safna fé í Krónunni á Selfossi til styrktar fólki í hjólastólum

Laugardaginn 3. nóbember nk. kl. 12–17 verða boðnar til sölu í anddyri Krónunnar á Selfossi rúllur af heimilisruslapokum framleiddar úr maíssterkju og trjákvoðu. Einnig mun margnota innkaupataska fylgja með. Salan tengist verkefninu „Við stólum á þig“ sem er til styrktar fólki í hjólastólum.

Tilgangur söfnunarinnar er að safna fé til aðstoðar einstaklingum sem orðið hafa fyrir því að lamast eftir slys eða veikindi og þurfa að notast við hjólastól um ókomna framtíð. Á Íslandi eru u.þ.b. 7.000 einstaklingar í hjólastól og meðaltal nærfjölskyldunnar eru 15 einstaklingar. Þetta eru um 105.000 einstaklingar, eða tæpur 1/3 þjóðarinnar. Slæmt aðgengi snertir því um þriðjung þjóðarinnar.

Aðstoðin er í formi styrkja til breytinga á heimilum þeirra einstaklinga sem notast við hjólastól. Um er að ræða að breikka huðarop, fjarlægja þröskulda, setja pumpur á efri skápa í eldhúsi og í baðheberginu. Breyta baði og salernisaðstöðu og eftir atvikum laga aðgengi að húsinu.

Fólk sem verður fyrir því áfalli að lamast eftir slys eða veikjast og þurfa að notast við hjólastól „situr“ frammi fyrir því að þurfa að kosta til miklum fjárhæðum við breytingar á heimili sínu. Það er ekki á færi allra. Tryggingabætur eru ekki ætlaðar til þess háttar verkefnis. Tryggingabætur eru ætlaðar til að viðkomandi geti lifað sómasamlegu lífi eftir t.d. slys þ.e. átt í sig og á í framtíðinni. Ef viðkomandi er ekki þess fjáðari er um fáa valkosti að ræða. Í boði er sérstakt „framkvæmdalán“ hjá Íbúðarlánasjóði upp að allt að átta milljónum með veði í íbúðinni, verðtryggt með 4,2% vöxtum. Það er ekki upplífgandi fyrir viðkomandi sem líklega er búinn að missa vinnuna eftir slysið eða veikindin og sér fram á verulega skertar tekjur í framtíðinni.

Ef fyrrgreindu leiðirnar eru ekki færar þá er bara einn valkostur eftir: Það er að fara á hjúkrunarheimili eða sambýli fjarri sinni fjölskyldu. Verra getur það varla verið.

Þegar sjóðurinn verður formlega tekinn til starfa geta allir þeir sem notast við hjólastól til frambúðar sótt um styrk úr honum. 
Reglugerð er í smíðum og verður hún birt á vefsíðu söfnunarinnar um leið og hún er fullbúin og samþykkt.

Til að geta fjármagnað verkefnið þá verða boðnar til kaups þrjár rúllur af stórum og sterkum heimilisruslapokum (3×20 stk.) framleitt úr maíssterkju og trjákvoðu.
 Ruslapokinn getur borið allt 3-4 kg. Pokinn eyðist upp í jaðrvegi á sextíu til níutíu dögum.
 Með í kaupbæti fylgir ein stór margnota innkaupataska.

Verkefnið Við stólum á þig er fjórþætt.
1. Fólk sem notast við hjólastól fær fjárhagsaðstoð til nauðsynlegra breytinga á heimili sínu.
2. Með kaupum á maíspokum stuðlum við að því að skila landinu hreinna frá okkur en við tókum við því.
3. Vitundarvakning meðal almennings um að ganga betur um landið okkar og bera virðingu fyrir náttúru Íslands.
4. Síðast en ekki síst, með því að gera fólki kelift að búa heima hjá sér spörum við mikið skattfé sem annars færi í byggingu og rekstur hjúkrunarheimila um allt land.