1.7 C
Selfoss
Home Fréttir Málþing um landnytjar og búskap í Skálholti

Málþing um landnytjar og búskap í Skálholti

0
Málþing um landnytjar og búskap í Skálholti

Opið málþing um landnytjar og framtíð búskapar í Skálholti verður haldið í Skálholtsskóla þriðjudaginn 23. október nk. og hefst það klukkan átta. Þrír stuttir fyrirlestrar verða fluttir um skógrækt til kolefnisjöfnunar og nytja, um aðstæður til búskapar og skepnuhalds og um útivist og gönguleiðir. Einar Gunnarsson, skógfræðingur, fjallar um skógræktarverkefni Kolviðar, Katrín Andrésdóttir, fv. héraðsdýralæknir, talar um aðstæður til búskapar og Finnur Kristinsson, landslagsakítekt ræðir um gönguleiðir og útivist á jörðinni.

Að málþinginu standa stjórn Skálholtsfélagsins hins nýja, stjórn Skálholts og vígslubiskupinn í Skálholti. Eftir að erindin hafa verið flutt verður tími til fyrirspurna og umræðu. Fundar- og umræðustjórar verða Drífa Hjartardóttir, formaður stjórnar Skálholts, og Erlendur Hjaltason, formaður Skálholtsfélagsins hins nýja. Hægt verður að kaupa máltíð í Skálholtsskóla fyrir fundinn á vægu verði en á fundinum verða kaffiveitingar í boði vígslubiskups, sr. Kristjáns Björnssonar. Málþingið er opið og eru allir velkomnir.