3.4 C
Selfoss

Vetrarfrí fjölskyldunnar í Listasafni Árnesinga

Vinsælast

Vetrarfrísdaga skólanna 18.–21. október býður Listasafn Árnesinga börnum og fjölskyldum þeirra að heimsækja safnið og taka þátt í ýmsu sem þar er á dagskrá. Boðið er upp á fjársjóðs spurningarleik í tengslum við sýningar safnsins sem eru Halldór Einarsson í ljósi samtímans, fjölbreytt sýning verka eftir fimm myndlistarmenn og leirmunasýningin Frá mótun til muna með verkum níu leirlistamanna.

Leikurinn er með þeim hætti að börn og fjölskyldur þeirra ganga saman um sýningarrýmið og merkja við laufléttar spurningar í einföldum fjársjóðsratleik. Svörunum er síðan komið fyrir í fjársjóðskistu sem í lok dags 21. október verður opnuð, einn heppinn þátttakandi dreginn út og fær sá fjársjóðspakka að launum.

Í barna- og fjölskyldukróknum verður líka sjálfbær smiðja þar sem leiðbeiningar liggja frammi hvernig búa á til popp-upp fjársjóðskort og allt efni sem þarf er þar til staðar þátttakendum að kostaðarlausu. Þar er einnig leir til að móta eitt og annað skemmtilegt, teikniblöð og ýmis teikniáhöld.

Það er því hægt að skapa skemmtilega samverustund með börnunum við leik og listir í Listasafni Árnesinga í vetrarfríinu. Safnið er opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 12–18 og allir velkomnir. Aðgangur að safninu og þeim fjársjóði sem þar er að finna er ókeypis sem og þátttaka í fjársjóðs spurningaleiknum og sköpuninni í barna- og fjölskyldukróknum. Uppbyggingasjóður Suðurlands styrkir fjölskyldusmiðjurnar sem safnið býður upp á. Verið velkomin að eiga góða stund saman í safninu.

Random Image

Nýjar fréttir