3.4 C
Selfoss

Dean Martin áfram með Selfossliðið

Vinsælast

Dean Martin hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss um þjálfun karlaliðs félagsins.

Dean tók tímabundið við liðinu í lok júlí síðastliðins og er mikil ánægja með störf hans innan félagsins þó að hlutskipti karlaliðsins hafi verið að falla niður í 2. deild.
„Það voru allir sammála um það í stjórninni að Dean væri fyrsti kostur í starf þjálfara karlaliðsins og við erum mjög ánægð með að um hafi samist. Hann hefur unnið mjög faglega fyrir okkur í sumar en auk þess að þjálfa meistaraflokk mun hann koma inn að styrktarþjálfun fyrir fleiri flokka,“ segir Jón Steindór Sveinsson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss.
Random Image

Nýjar fréttir