-0.5 C
Selfoss
Home Fréttir Tólf sporin – Andlegt ferðalag að hefjast í Selfosskirkju

Tólf sporin – Andlegt ferðalag að hefjast í Selfosskirkju

0
Tólf sporin – Andlegt ferðalag að hefjast í Selfosskirkju
Selfosskirkja.

Selfosskirkja býður upp á sjálfstyrkingarprógramið Tólf sporin – Andlegt ferðalag. Vinir í bata, munu leiða starfið af stað og hefst það miðvikudaginn 20. september og verða vikulegir fundir í vetur.

Vinir í bata er hópur fólks sem hefur farið sjálft í gegnum prógramið og tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl og hefur það að markmiði að gefa öðrum kost á því að kynnast þessu prógrami óháð fíkn eða meðvirkni. Þetta starf hefur gefið mörgum mjög mikið og orðið fólki til blessunar. Tólf spora vinna hentar öllum þeim sem í einlægni vilja vinna með tilfinningar sínar í þeim tilgangi að öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu þar sem leitað er styrks í kristinni trú. Þetta tólf spora prógramm er öllum opið.

Boðið er upp á þrjá opna kynningarfundi þar sem fólk hefur tækifæri til að sjá út á hvað prógramið gengur, á fjórða fundi er hópnum lokað og unnið er út frá vinnubókinni Tólf sporin – Andlegt ferðalag. Unnið er í litlum lokuðum hópum, vinnan gengur út á að deila eigin reynslu styrk og von, mæta á vikulega fundi sem eru haldnir á miðvikudagskvöldum kl. 20:00–22:00 í safnaðarheimili Selfosskirkju. Kirkjan býður þátttakendum upp á þetta þeim að kostnaðarlausu, utan þess að þeir þurfa að kaupa vinnubókina Tólf sporin – Andlegt ferðalag sem er til sölu í Bókakaffi á Selfossi.

Vinir í bata (VIB) eru með heimasíðu, viniribata.is, þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar um Tólf sporin – Andlegt ferðalag.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Guðbjörg Katrín Sigurbjörnsdóttir í síma 898 1974.