7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Soralegi Havanaþríleikurinn

Soralegi Havanaþríleikurinn

0
Soralegi Havanaþríleikurinn

Soralegi Havanaþríleikurinn eftir Kúbumanninn Pedro Juan Gutiérrez er komin út hjá Bókaútgáfunni Sæmundi. Bókin, sem heitir á frummálinu Trilogia sucia de La Habana, er skrifuð í anda svonefnds soraraunsæis þar sem ekkert er dregið undan og er hún bönnuð í heimalandi höfundar.

Sögusviðið er Kúba, og þá einkanlega höfuðborgin Havana, eftir fall Sovétríkjanna þegar eina glætan í myrkrinu er kynlíf, romm og marijúana. Sögumaðurinn Pedro Juan rambar á ystu nöf í lífinu, hírist í herbergi á þaksvölum háhýsis er má muna sinn fífil fegri, eins og allt Centrohverfið í Havana sem er rammi sögunnar. Pedro Juan dregur fram lífið á því sem til fellur en lifir þó mest á sambýliskonum sem koma og fara og „pútast“ með túristunum. Skammt undan er Karíbahafið. Fellibylir hvolfast yfir. Fólk flýr land. En undir og yfir er Castro-stjórnin.

„Ég lýsi þessu viljandi á svona harðneskjulegan hátt til að ná fram ástandinu sem ríkti á þessum tíma, lýsi karlrembunni sem er samofin samfélögunum hér við Karíbahaf, lýsi undirokun konunnar, hörmungum lífsins,“ sagði höfundur við þýðanda í Havana haustið 2017.

Pedro Juan Gutiérrez fæddist á Kúbu 1950. Hann er rithöfundur, blaðamaður, málari, skáld. Soralegi Havanaþríleikurinn er án efa þekktasta bók hans en hann hefur skrifað fjölda annarra verka sem komið hafa út víða um lönd. Kristinn R. Ólafsson þýddi úr spænsku.