-0.6 C
Selfoss

Skapandi skólastarf í Bláskógaskóla Reykholti

Vinsælast

Í Bláskógaskóla Reykholti er mikil gróska, bæði í bóklegu og verklegu námi, enda hæfileikaríkir úrvalskennarar í hverri skólastofu.

Í verkgreinum er vel hlúð að hönnunarþættinum; það á við í myndmennt, handmennt, smíði og leir/glersmiðju. Flugdrekasmíði hefur verið meðal viðfangsefnanna hjá Arite Fricke, myndmennta/leir/gler-kennara skólans, með meiru. Í tilefni af 25 ára afmæli Drachen Foundation í Seattle í Bandaríkjunum hleypti stofnunin af stokkunum samkeppni um frumlegustu flugdrekahönnunina.

Vinningshafinn Jóhann S. Andersen.

Nemendur Arite tóku þátt í henni og til að gera langa sögu stutta voru úrslit tilkynnt á vordögum og hlaut Jóhann Sigurður Andersen, nemandi í 9. bekk, 1. verðlaun. Alls tóku 25 hönnuðir þátt í samkeppninni.

Afurðir nemenda úr flugdrekahönnuninni í skólanum.

Vinningshönnun Jóhanns var sett á nælur í þremur litum og fékk sess í nælusafni frá frumkvöðlum og hönnuðum á borð við Samuel Franklin Cody og Scott Skinner, fyrrverandi flugmanni og stofnanda Drachen Foundation. Flugdrekinn hans Jóhanns kallast Sanja-Rokkaku (hefðbundið japanskt flugdrekaform) og er hann gerður úr kínverskum bambus og flugdrekapappír. Innblástur fékk Jóhann úr bók DuMonts „Bastelbuch der Drachen“ og bók Franz Arz „Asiatische Drachen selber bauen“.

Um leið og við klöppum Arite á bakið, óskum við Jóhanni innilega til hamingju með árangurinn.

Við erum auðvitað rígmontin af vinningshafanum. Vel gert kæri Jóhann!

Hreinn Þorkelsson skólastjóri.

Random Image

Nýjar fréttir