5 C
Selfoss
Home Fréttir Sveitarstjórn Skaftárhrepps sendi frá sér ályktun vegna skýstróks

Sveitarstjórn Skaftárhrepps sendi frá sér ályktun vegna skýstróks

0
Sveitarstjórn Skaftárhrepps sendi frá sér ályktun vegna skýstróks

Sveitarstjórn Skaftárhrepps sendi í dag frá sér eftirfarandi ályktun vegna afleiðinga og tjóns sem skýstrókurinn sem gekk yfir bæinn Norðurhjáleigu í Álftaveri sl. föstudag olli;

Sveitarstjórn fer fram á að almannatryggingakerfið taki til endurskoðunar skilgreiningu á því hvað telst til náttúruhamfara í ljósi nýliðinna atburða vegna tjóns af völdum skýstróks í Norðurhjáleigu. Skýstrókar af þeirri stærðargráðu sem gengu yfir Norðurhjáleigu eru fyrirbrigði sem ekki er þekkt á Íslandi í sögulegu samhengi. Það er alveg ljóst að atburður af þessu tagi getur gerst aftur hvar sem er á landinu og engin leið að spá fyrir um slíkt líkt og önnur veðurfyrirbrigði. Skýstrókar eru ófyrirsjáanlegir með öllu og hefur Veðurstofa Íslands enga möguleika á að gefa út viðvaranir vegna þeirra. Sveitarstjórn fer fram á að viðeigandi stofnanir í samvinnu við ríkið bæti það tjón sem ábúendur í Norðurhjáleigu urðu fyrir þann 24. ágúst sl.