-5 C
Selfoss
Home Fréttir Sumartónleikar í Skálholti

Sumartónleikar í Skálholti

0
Sumartónleikar í Skálholti

Síðasta tónleikahelgi Sumartónleika í Skálholti verður um verslunarmannahelgina. Fyrstu tónleikarnir verða haldnir föstudagskvöldið 3. ágúst klukkan 20. Þar koma fram Sólveig Thoroddsen hörpuleikari og lútuleikarinn Sergio Coto Blanco, sem er fæddur í Kosta Ríka. Sólveig og Sergio starfa bæði í Þýskalandi og eiga að baki langt nám í sögulega upplýstum tónlistarflutningi. Efnisskrá þeirra spannar þrjár aldir, elstu verkin frá 14.öld og höfundarnir ítalskir, enskir og franskir, en einnig flytja hljóðfæraleikararnir eigin útsetningar á íslenskum þjóðlögum. Þessir tónleikar verða endurteknir laugardaginn 4. ágúst klukkan 14.

Konur í öndvegi.

Þann sama dag klukkan 16 leikur hinn margverðlaunaði kammerhópur Nordic Affect efnisskrána „Hún“. Eru þeir tónleikar tileinkaðir tónlist kvenna og verður leikin barokktónlist á upprunahljóðfæri. Þessi efnisskrá verður endurtekin sunnudaginn 5. ágúst klukkan 14 og klukkan 16 sama dag flytur Nordic Affect ný verk eftir staðartónskáld Sumartónleikanna 2018 þær Báru Gísladóttur og Bergrúnu Snæbjörnsdóttur auk verka eftir víetnamska tónskáldið Luong Hue Trinh og Veronique Vaka frá Kanada. Starf Nordic Affect einkennist af nýstárlegri nálgun og frumleika í verkefnavali en hópurinn hefur frá upphafi flutt allt frá danstónlist 17. aldar til raftónlistar okkar tíma. Nordic Affect hefur haldið tónleika víða um lönd og má einnig finna leik hópsins á hljómdiskum. Í október er væntanlegur hljómdiskurinn He(a)r með Nordic Afffect í útgáfu Sono Luminus.

Áhugasömum er bent á að fara á veffangið www.sumartonleikar.is til að kynna sér tónleikana. Einnig er hægt að hafa samband símleiðis við Skálholtsstað. Ókeypis er á viðburðinn.