Leikfélag Selfoss verður 60 ára, leik- og gönguferð í tilefni afmælisins

Innstidalur. Mynd: Leikfélag Selfoss.

Nokkrir félagar úr Leikfélagi Selfoss ætla að leggja land undir fót og ganga á fjórum dögum yfir fjöll og firnindi. Ferðin er í raun leik- og gangverk sem ber nafnið „Ég held ég gangi heim, ævintýri á gönguför“. Ferðin hefst í Mosfellsbæ nánar tiltekið á Reykjum í Reykjadal. Haldið er af stað og ferðinni heitið alla leið í Litla leikhúsið við Sigtún 1 á Selfossi. Á leiðinni verða leikræn, ljóðræn og söngleg tilbrigði lífs og náttúru höfð í hávegum og munu leikfélagar sem og allir sem vilja fylgja þeim, spinna saman ljúfa daga.

Gústav Stolzenwald leikstjóri og leiðsögumaður ferðarinnar segir: „Þessi ferð er farin í tilefni þess að Leikfélag Selfoss er 60 ára á árinu og hugsuð til að styrkja andann, sem og fjárhag félagsins en hóflegt gjald verður tekið fyrir þátttöku. Gangan er 60 km löng sem hæfir tilefninu vel. Auðvitað gæti vantað aðeins upp á þá vegalengd, en þá dönsum við bara það sem uppá vantar“.

„Verkið er í fjórum þáttum þar sem hver þáttur er sjálfstætt verk. Hver þáttur tekur einn dag. Þetta verður því sennilega eitt af lengstu leikverkum Íslandssögunnar. Vonandi sjá sér margir fært að koma með og taka þátt. Hver og einn þátttakandi mun setja mark sitt á verkið sem fullgildur leikari og göngumaður“.

Gangan er samtals fjórir dagar í heildina. Allar dagleiðirnar eru sirka 14-15 km. Reiknað er með að gangan geti tekið allt frá fimm tímum upp í átta tíma hvern legg. Það fer alveg eftir því hvað verður gaman!

Laugardagurinn 11. ágúst – Dagur 1

Gengið frá Reykjum í Mosfellsbæ um Reykjaborg, Þverfell og Lyklafell að Litlu-Kaffistofunni við Svínahraun.

Laugardagurinn 18. ágúst – Dagur 2

Gengið frá Litlu-Kaffistofunni gamla þjóðveginn í átt að Kolviðarhól. Haldið upp Húsmúlann, Innstadal og Hengladali allt til enda dagleiðarinnar á Ölkelduhálsi.

Sunnudagurinn 19. ágúst – Dagur 3

Gengið frá Ölkelduhálsi og um Ölkelduhjúk að botni Reykjadals. Þaðan um hnjúka og skörð niður í Dalakaffi. Áfram haldið um skógarstíga innan Hveragerðis og austur að gróðurstöðinni Nátthaga.

Laugardagurinn 1. september – Dagur 4

Gengið frá Nátthaga um Grafningsháls á Inghól á Ingólfsfjalli og þaðan sem leið liggur að vörðunni ofan við Þórustaðanámuna, og síðan gamla þjóðveginn í Litla leikhúsið við Sigtún þar sem endir leik og gangverksins verður fluttur.

Þeim sem vilja kynna sér ferðina betur geta farið á síðu verkefnisins á Facebook. Verkefnið er þar undir nafninu Ég held ég gangi heim „Ævintýri á gönguför“. Einnig er hægt að skrá sig beint á gongufor@leikfelagselfoss.is Þá er bent á að fjöldatakmörkun er á þátttöku og rútur notaðar til flutninga. Því þarf að skrá sig í ferðina síðasta lagi tveim dögum fyrir brottför hverrar dagleiðar. Hóflegt gjald er tekið fyrir þátttöku til styrktar Leikfélagi Selfoss.