5 C
Selfoss

Hlynur Geir og Alda klúbbmeistarar GOS 2018

Vinsælast

Meistaramót Golfklúbbs Selfoss fór fram dagana 3.–7. júlí sl. á Svarfhólsvelli. Þátttaka var með ágætum í ár en sjötíu kylfingar voru skráðir til leiks og leikið var í tólf flokkum. Þau yngstu hófu sinn leik á þriðjudagsmorgun 3. júlí. Gríðalega jöfn keppni var í flestum flokkum og urðu úrslit ekki ljós fyrir en á síðustu holu mótsins.

Hlynur Geir Hjartarson og Alda Sigurðardóttir stóðu uppi sem klúbbmeistarar í ár. Verðlaunaafhending og uppgjör mótsins fór fram í klúbbhúsinu að móti loknu.

Úrslit mótsins urðu sem hér segir:

Meistaraflokkur karla: 1. Hlynur Geir Hjartarson (284 högg), 2. Pétur Sigurdór Pálsson (305 högg) sigur eftir bráðabana og 3. Vignir Egill Vigfússon (305 högg).

Kvennaflokkur kvenna: 1. Alda Sigurðardóttir (377 högg), 2. Jóhanna Bettý Durhuus (410 högg) og 3. Ástfríður M. Sigurðardóttir (414 högg).

Kvennaflokkur (Punktakeppni): 1. Jóhanna Bettý Durhuus (119 punktar), 2. Alda Sigurðardóttir (109 punktar) og 3. Ástfríður M. Sigurðardóttir (103 punktar).

  1. flokkur karla: 1. Ástmundur Sigmarsson (337 högg), 2. Yngvi Marinó Gunnarsson (338 högg) og 3. Pétur Viðar Kristjánsson (350 högg).
  2. flokkur karla: 1. Heiðar Snær Bjarnason (336 högg), 2. Leifur Viðarsson (354 högg) og 3. Otri Smárason (357 högg).
  3. flokkur karla: 1. Ingvar Kristjánsson (362 högg), 2. Bjarki Már Magnússon (364 högg) og 3. Kristinn Sölvi Sigurgeirsson (365 högg).
  4. flokkur karla: 1. Sigurður Júlísson (400 högg), 2. Adam Þorsteinsson (401 högg) og 3. Óðinn Svavarsson (412 högg).
  5. flokkur (punktakeppni): 1. Jóhann Már Guðjónsson (110 punktar) og 2. Sigurður Gauti Hauksson (93 punktar).

Eldri kylfingar: 1. Bárður Guðmundarsson (356 högg), 2. Samúel Smári Hreggviðsson (364 högg) og 3. Jón Gíslason (407 högg).

Eldri kylfingar 70 ára og eldri (punktakeppni): 1. Vilhjálmur Pálsson (129 punktar), 2. Símon Ingi Gunnarsson (68 punktar) og 3. Ágúst Magnússon (54 punktar).

Börn og unglingar spiluðu 9 holur:

Stúlkur: 1. Eva María Óskarsdóttir, 2. Sigríður Ástmundsdóttir og 3. Katrín Embla Hlynsdóttir.

Drengir: 1. Rúnar Freyr Gunnarsson, 2. Gunnar Kári Bragason og 3. Adam Nökkvi Ingvarsson.

Einnig voru veitt aukaverðlauna fyrir flesta punkta fyrir hvern dag:

Dagur 1: Heiðar Snær Bjarnason (42 punktar).
Dagur 2: Adam Þorsteinsson (34 punktar).
Dagur 3: Bjarki Már Magnússon (42 punktar).
Dagur 4: Kristinn Sölvi Sigurgeirsson (38 punktar).
Dagur 5: Óðinn Svavarsson 42 punktar

Næstu holu á 4 holu í mótinu: Vignir Egill Vigfússon 186 m.

Vignir Egill Vigfússon fékk afhendan bláa jakkan fyrir að vera Holumeistari GOS 2018, Gunnar Marel varð í öðru sæti og Heiðrún Anna í þriðja sæti.

Nýjar fréttir