2.8 C
Selfoss
Home Fréttir Ökumaður virti ekki lokanir á Selfossi

Ökumaður virti ekki lokanir á Selfossi

0
Ökumaður virti ekki lokanir á Selfossi

Að morgni 5. júlí sl. ók ökumaður jepplings gegn lokunum sem settar höfðu verið upp vegna malbikunar á Austurvegi, austast á Selfossi. Maðurinn virti að engu bendingar starfamanna á vinnusvæðinu og áttu þeir fótum fjör að launa vegna framgöngu hans. Maðurinn var yfirheyrður á lögreglustöð vegna brota sinna sem hann gekkst við. Málið er í rannsókn og hafa verið teknar skýrslur af vitnum að atvikinu. Að rannsókn lokinni mun maðurinn að líkindum sæta ákæru vegna málsins enda það litið alvarlegum augum